Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 44
en lægri en í Svíþjóð. Þá erum við lægri en Finnar og Svíar í refsingum fyrir
þjófnaðarbrot, örlítið hærri en Norðmenn, en á sama báti og Danir. Að lokum
erum við talsvert lægri en Norðmenn og Svíar í refsingum fyrir alvarleg
fíkniefnabrot, en ívið hærri en Danir.
Að lokum má nefna, að á þingi Alþjóðasambands dómara árið 1992 var
fjallað um samfélagsþjónustu sem viðurlagaúrræði. í öllum nálægum löndum,
þar sem samfélagsþjónusta hefur verið lögtekin, er það algerlega á valdi dómara
að ákveða, hvort þessu úrræði verði beitt. Hér á landi hefur sú leið hins vegar
verið farin að líta á samfélagsþjónustu sem lið í fullnustu refsingar með því að
stjórnvald, þ.e. sérstök nefnd, skipuð af dómsmálaráðherra, ákveður eftir
umsókn, hvort framkvæmdavaldinu þóknist að breyta refsivistarákvörðun
dómsvalds í samfélagsþjónustu. Stjórnvaldið ógildir því refsiákvörðun dómara
og ákveður önnur viðurlög. Dómari hefur hins vegar alls ekki um þetta
refsiúrræði að velja. Hlýtur sú spuming að vakna, hvort þetta fyrirkomulag
brjóti ekki í bága við 2. gr. stjórnarskrárinnar, sem kveður skýrt á um það, að
dómendur fari með dómsvaldið í landi hér.
38