Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 53

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1996, Síða 53
5. HLUTVERK ÁKÆRANDA OG VERJANDA VIÐ MEÐFERÐ OPIN- BERS MÁLS FYRIR HÉRAÐSDÓMI 5.1 Viðvera ákæranda sem skilyrði fyrir því að máli verði lokið 5.2 Þingfesting opinbers máls 5.3 Mál sem ljúka má með viðurlagaákvörðun samkvæmt 1. mgr. 124. gr. oml. 5.4 Mál sem ljúka má með játningardómi samkvæmt 125. gr. oml. 5.5 Mál sem sætir aðalmeðferð samkvæmt 128.-130. gr. oml. 6. FLUTNINGUR OPINBERRA MÁLA FYRIR HÆSTARÉTTI 1. INNGANGUR Með gildistöku laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 urðu á margan hátt grundvallarbreytingar á opinberu réttarfari hér á landi, ekki hvað síst er varðaði fyrirkomulag ákæruvalds í landinu og meðferð opinberra mála fyrir dómstólum. Hin nýja skipan byggir að meginstefnu til á því, sem nefnt hefur verið ákæruréttarfar (akkusatorisk proces), en andstæðan við slíkt réttarfar er svonefnt rannsóknarréttarfar (inkvisitorisk proces). Með lögum nr. 19/1991, oml., var að fullu skilið á milli rannsóknar- og ákæruvalds annars vegar og dómsvalds hins vegar og dómsrannsóknir í þeirri mynd sem áður þekktust voru aflagðar. I þess stað er nú rætt um meðferð máls fyrir dómi eða dómsmeðferð. Samkvæmt hinni nýju skipan er þó ekki gert ráð fyrir því, að hér á landi ríki hreinræktað ákæruréttarfar, þar sem talið hefur verið meðal einkenna þess að ákæranda beri engin skylda til þess að sýna hlut- lægni í störfum sínum, fremur en verjanda. Lög nr. 19/1991 gera ráð fyrir slfkri hlutlægnisskyldu ákæranda og auk þess má við skoðun þeirra finna fleiri merki um leifar frá hinu foma rannsóknarréttarfari, sem hér var við líði á áram áður. Núgildandi réttarfarsskipan má hins vegar lýsa sem ákæruréttarfari með nokkrum einkennum rannsóknarréttarfars. Starf og hlutverk ákæranda tók miklum breytingum með lögum nr. 19/1991 í samræmi við breytta hugsun um meðferð opinberra mála, en hlutverk ákæranda við meðferð sakamáls fyrir héraðsdómi var aukið mjög frá því sem verið hafði. Réttarstaða sakbomings og málsvara hans var ennfremur bætt nokkuð með lög- unum og hún gerð mun skýrari frá því sem verið hafði. 2. SAKSÓKN í OPINBERUM MÁLUM - MEGINVERKEFNI ÁKÆRU- VALDSINS Ákvörðun um saksókn í opinberum málum liggur að meginstefnu til hjá ríkissaksóknara og lögreglustjórum, sbr. 2. mgr. 27. gr. og I. mgr. 28. gr. oml., sbr. 2. gr. laga nr. 38/1993. Frá þessari meginreglu er vikið ef ríkissaksóknari er vanhæfur til meðferðar einstaks máls, en þá skal dómsmálaráðherra skipa annan löghæfan mann til meðferðar þess máls, sbr. 1. mgr. 30. gr. oml. 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.