Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 57

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 57
Sjálfsagt er ekki ofsagt að hér hafi EFTA-dómstóllinn gengið mjög nærri þeim ramma sem honum er sniðinn í stofnsamningi hans. 3.2.3 Álit iögsögumanns Evrópudómstólsins í málinu C-321/97 Ástæða er til að nefna að fyrir Evrópudómstólnum er rekið mál þar sem reynir á tilvist bótaskyldu ríkis gagnvart einstaklingi í því tilviki að EES-regla hefur ekki réttilega verið leidd í landsrétt. Lögsögumaður Evrópudómstólsins, Georges Cosmas, hefur skilað áliti sínu í málinu, dags. 19. janúar 1999.16 Lög- sögumaðurinn taldi reyndar að álitaefnið heyrði ekki undir Evrópudómstólinn þar sem EES-samningurinn teldist ekki til bandalagsréttar í skilningi 177. gr. stofnsáttmála EB. Engu að síður kaus hann að fjalla efnislega um tilvist bótareglu á sviði EES-réttarins. Niðurstaða hans var sú að slíkri bótareglu væri ekki fyrir að fara. Niðurstöðu sinni til stuðnings vísaði lögsögumaðurinn til þess að EES- samningurinn miðaði að sköpun regluverks til að stuðla að frjálsum viðskiptum og samkeppni. Stofnsáttmáli Evrópubandalagsins miðaði hins vegar að stofnun innri markaðar, myndun mynt- og efnahagsbandalags og sköpun Evrópusam- bandsins. Frjáls viðskipti og samkeppni væru einungis ein af mörgum leiðum til að ná þessum markmiðum. Markmið Evrópubandalagsins gengu því lengra heldur en markmið aðildamkja EES. Þá vísaði lögsögumaðurinn til þess að Evrópudómstóllinn hefði slegið því föstu í áliti sínu nr. 1/91, um uppkast að samningi um EES, að samningnum væri ætlað að ná markmiðum sínum á þjóðréttarlegum grunni og skapaði þannig í aðalatriðum aðeins réttindi og skyldur fyrir aðildarríki samningsins en fæli ekki í sér framsal fullveldis. Gagnályktun fæli það þannig í sér að reglur um bein réttaráhrif og forgangsáhrif bandalagsréttar væru sérstakar reglur sem giltu ekki í því réttarkerfi sem EES- samningurinn stofnar. Af þessu leiði að bótaregla bandalagsréttarins verði ekki talin hluti EES-réttarins hvað sem líði tilvist 6. gr. EES-samningsins. Þessu til frekari stuðnings vísaði lögsögumaðurinn svo til 7. gr. EES-samningsins og bókunar 35.17 Síðan segir orðrétt í áliti lögsögumannsins: Sammanfattningsvis kan en EFTA-stats (Sveriges, i förvarande fall) övertrádelse av en regel i EES-avtalet ádra denna stat avtalsrattligt ansvar enligt folkratten, men kan inte ge upphov till en rátt för enskilda sem berörs av denna övertrádelse att kráva utomobligatoriskt skadestánd av staten med stöd av de principer som Europeiska gemenskapemas domstol har slagit fast i sin dom i förenade málen C-6/90 och C- 9/90 med avseende pá enbart gemenskapens ráttsordning. 16 Vísað er til slóðar Evrópudómstólsins á veraldarvefnum (24. febrúar 1999; http://www. curia.eu.int/). Málið C-321/97; UIIa-Brith Anderson og Susanne Wákerás-Andersson gegn Svíþjóð. 17 Hér er einkum vísað til 47.-53. tl. álitsins. 209
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.