Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 68

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 68
1. INNGANGUR Við skattlagningu er almennt talið að tilgangur og huglægar forsendur að baki fjárhagslegri ráðstöfun skipti ekki máli. Meginreglan er því sú að skatt- lagning fer hlutrænt fram á grundvelli fjárhagslegra ráðstafana. Ekki er almennt talið skipta máli að skattalegt hagræði hafi ráðið ákvörðun um fjárhagsleg málefni. Skattalög gera þó stundum sérstaklega ráð fyrir skattalegu hagræði t.d. reglur um frádrátt frá skattskyldum tekjum vegna hlutabréfakaupa, sbr. 1. tölul. b-liðs 1. mgr. 30. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, sbr. 5. gr. laga nr. 154/1998. Það er grundvöllur skattalaga að skattaðilar hafi sjálfir ákvörðunar- rétt um fjárhagslega ráðstöfun og hvert efni hennar er. Skattaðilar grípa oft til ráðstafana til að komast hjá greiðslu skatta, m.a. vegna hárrar skattprósentu. Þessar ráðstafanir geta verið 1) lögmætar, jafnvel er beinlínis gert ráð fyrir þeim í lögum, og eru þær því lagðar til grundvallar álagningu skatta, 2) ólögmætar og því litið framhjá þeim við skattlagningu og 3) ólögmætar og refsiverðar, og því bæði litið fram hjá þeim við álagningu eða krafist endurgreiðslu í refsimáli og ákvörðuð refsing samkvæmt skattalögum eða hegningarlögum af þar til bærum aðilum. I lögfræðilegri umfjöllun þarf að greina hvar mörkin liggja milli lögmætra og ólögmætra ráðstafana og hvaða lagasjónarmið hafi þar áhrif. Ennfremur þarf að ákvarða hvenær ólögmæt ráðstöfun telst refsiverð, en um þau mörk verður ekki fjallað í þessari grein. Þegar slíkar ráðstafanir skattaðila eru metnar verður að líta til ákveðins veik- leika sem felst í uppbyggingu skattkerfisins sem slrks og mótsagna eða mis- ræmis í skattalögum sem mynda „glufur“ eða „gljúfur“ í þeim. Þegar skattaðilar nýta þessa annmarka á sjálfu kerfinu og galla í löggjöfinni er hægt að segja að þeir séu að sniðganga skattalögin. Dæmi um innbyggða veikleika skattkerfisins er mismunandi skattlagning sömu tegundar tekna hjá skattaðilum, t.d. skatt- lagning einstaklings (38,34%, eða 45,34% með hátekjuskatti), sameignarfélags (38%) og hlutafélags 30%, (en verður 37% ef hagnaður eftir skatt er allur greiddur út sem arður til einstaklinga). Þá er mismunandi skattlagning hjá sömu skattaðilum eftir tegund tekna t.d. launatekjur (38,34% eða 45,34%,) og fjár- magnstekjur (10%). Ennfremur er mismunandi skattur eftir vörutegundum, t.d. virðisaukaskattur er almennt 24,5% en 14% á tilteknum vörum. Einnig er mis- munandi skattlagning milli landa hjá sömu skattaðilum með samskonar tekjur. Það getur því verið skattalega hagkvæmt að tekjur renni til sameignarfélags í stað einstaklings og því geri aðilar viðeigandi ráðstafanir. Þá vill maður með atvinnurekstur t.d. nýta skattafslátt barna sinna eða lágan skatt á böm innan 16 ára og telur því fram tekjur á bamið í engu samræmi við raunverulegt vinnu- framlag. Þá getur verið skattalega hagkvæmt að fá tekjur sem vaxtatekjur sem bera 10% skatt og eru því gerðar ráðstafanir í því skyni að tekjumar verði „vaxtatekjur“ en ekki annars konar tekjur o.s.frv. Með upptöku fjármagnstekjuskatts, þar sem söluhagnaður einstaklinga utan rekstrar er skattlagður í 10% skattþrepi en söluhagnaður af rekstrareignum í allt 220
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.