Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 78

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 78
reiknað endurgjald yrðu felld brott.29 Niðurstaðan varð þó sú að reglurnar voru ekki felldar niður en lítillega breytt með lögum nr. 25/1981 og síðar með lögum nr. 49/1987 í tengslum við upptöku staðgreiðslu opinberra gjalda. í 6. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, er að finna ákvæði um reiknað endurgjald í staðgreiðslu. Ennfremur eru þar ákvæði um viðmið- unarreglur sem ríkisskattstjóra ber að setja. Ákvæði 3. mgr. 6. gr. laga nr. 47/1987 um að reiknað endurgjald sé ekki lægra en það hefði orðið hefði við- komandi unnið starfið hjá óskyldum aðila, er sambærilegt og ákvæði 2. mgr. 1. tölul. A-liðs 7. gr. laga nr. 75/1981. 5.2 Skattlagning hjóna Um skattlagningu hjóna gilda sérstakar reglur vegna skiptingar atvinnu- rekstrartekna og tekna af eignum, sbr. 1. og 2. mgr. 63. gr. laga nr. 75/1981. Tekjur af eignum skal telja til tekna hjá því hjóna sem hefur hærri hreinar tekjur. Hreinar tekjur af atvinnurekstri skal telja til tekna hjá því hjóna sem stendur fyrir rekstrinum. Þá er tekið fram að þegar atvinnurekstur eða sjálfstæð starf- semi er háð sérþekkingu eða persónubundnum rekstrarleyfum skulu hreinar tekjur af rekstrinum taldar hjá því hjóna sem sérþekkinguna eða leyfið hefur. Starfi hjón sameiginlega að atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi og hafi bæði þá sérþekkingu eða leyfi sem krafist er, eða sé slrkrar sérþekkingar eða leyfa ekki krafist, skal skipta hreinum tekjum af rekstrinum í hlutfalli við vinnufram- lag hvors um sig og telja til tekna hjá hvoru hjóna. Geri hjón ekki fullnægjandi og rökstudda grein fyrir vinnuframlagi hvors um sig eða þyki skýrslur þeirra tortryggilegar skulu skattyfirvöld áætla skiptingu hreinna tekna af atvinnu- rekstrinum eða hinni sjálfstæðu starfsemi. í almennum athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 40/1978 kemur fram að með reglum um skattlagningu hjóna sé gengið eins langt til sérsköttunar hjóna og fært þyki. Tekið er fram að ekki sé mögulegt að skipta eignum hjóna eða tekjum af þeim milli hjóna eftir því hvor teldist eigandi þeirra og ástæða þess m.a. talin vera að alger sérsköttun opni hjónum möguleika á að skipta þessum tekjum og eignum á milli sín til skattlagningar á þann hátt sem þeim sé hagkvæmastur án þess að skattyfirvöld hefðu möguleika til vefengingar á þeim skiptum.30 í athugasemdum við 63. gr. eru áréttuð rök fyrir skattalegri meðferð tekna af eignum samkvæmt C-lið 7. gr. laganna og tekið fram að væri eignum skipt milli hjóna geti það opnað hjónum sem hafa verulegar eignatekjur auðvelda leið til tekjudreifingar.31 I athugasemdum við 63. gr. frumvarpsins kemur fram um 3. tölulið 1. mgr. að um sé að ræða ákvæði um meðferð atvinnurekstrartekna. Sé leitast við að 29 Um sögulega þróun reglna um reiknað endurgjald er að finna umfjöllun í kandídatsritgerð Ingibjargar Ingvarsdóttur: Reglur um reiknað endurgjald. 1994, bls. 97-185. 30 Alþt. 1977-1978, A-deild, bls. 2563. 31 Alþt. 1977-1978, A-deild, bls. 2577. 230
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.