Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 80
Nokkur brögð hafa verið að því að félög, sem í raun hafa verið hætt allri starfsemi,
séu keypt af fyrirtækjum, sem eru í fullum rekstri, vegna þess að eftir stendur í
reikningum þeirra ójafnað tap frá því að þau voru í rekstri. Félög þessi kunna hins
vegar að öðru leyti að vera skuldlaus og eignalaus. Kaupandi nýtir sér þetta ójafnaða
tap til lækkunar á skattskyldum tekjum því að hann yfirtekur allar skattaréttarlegar
skyldur og réttindi félagsins sem selt var. Þá eru einnig dæmi um samruna félaga f
alls óskyldum atvinnugreinum í þessu skyni.
Þar sem telja verður kaup af því tagi sem að framan er lýst hafi í raun engan tilgang
annan en þann að komast hjá greiðslu tekjuskatts er í þessari grein lagt til að eftir-
stöðvar rekstrartapa frá fyrri árum hjá því félagi sem slitið var flytjist ekki til þess
félags er við tekur, nema það hafi með höndum sams konar rekstur eða starfsemi og
félagið stundaði sem slitið var. Einnig felst í greininni að eftirstöðvar rekstrartaps
þess félags sem slitið var flyst ekki til þess félags sem við tekur hafi það félag sem
slitið var hætt starfsemi sinni fyrir slitin og átt óverulegar eignir.35
í framsöguræðu sinni í neðri deild Alþingis sagði fjármálaráðherra meðal
annars:
Heimild til yfirfærslu taps við kaup eða sameiningu fyrirtækja í óskyldum rekstri
verði þrengd. Það hefur farið vaxandi- og mun e.t.v. gera það miðað við erfiða stöðu
og rekstrarstöðvun og gjaldþrot margra fyrirtækja- að ýmis fyrirtæki önnur freistist
til að kaupa tapfyrirtækin eða gjaldþrotafyrirtæki eingöngu í skattahagnaðarskyni.
Slíkt teljum við mjög óeðlilegt, og hægt að færa fyrir því margvísleg rök, og viljum
þess vegna koma í veg fyrir það að tap við kaup eða sameiningu fyrirtækja í óskyld-
urn rekstri verði jafn rúm og verið hefur. Hins vegar verður áfram hægt, þegar
sameiningu eða samtengingu fyrirtækja í skyldum rekstri í hagræðingarskyni eða
þegar um annan eðlilegan rekstrartilgang er að ræða, að yfirfæra tapið þá með sama
hætti og áður.36
Með 8. gr. laga nr. 85/1991 var 57. gr. A síðan breytt að nýju og kemur fram
í almennum athugasemdum við frumvarp það er varð að lögum nr. 85/1991 að
frumvarpið fæli í sér þrengingu á möguleikum til að nýta tap við sameiningu
fyrirtækja.37 Frumvarpið breyttist nokkuð í meðförum Alþingis og sagði í
nefndaráliti efnahags- og viðskiptanefndar að breytingamar fælu í sér nokkra
rýmkun á skilyrðum sem frumvarpið gerði ráð fyrir að sett verði fyrir yfirfærslu
taps við sameiningu félaga.38
í úrskurði yfirskattanefndar nr. 805/1997 (ST 1997:180) er tekið fram að
ákvæði 57. gr. A, sbr. 8. gr. laga nr. 85/1991, geymi undantekningar frá þeim
meginreglum 56. og 57. gr. laga nr. 75/1981 að við samruna eða sameiningu
félaga eða þargreinda breytingu rekstrarforms flytjist allar skattaréttarlegar
skyldur og réttindi þess félags sem slitið er eða breytt til þess félags sem við
35 Alþt. 1988-1989, A-deild, bls. 1213.
36 Alþt., 1988-1989, B-deild, bls. 1920.
37 Alþt. 1991, A-deild. bls. 1869.
38 Alþt. 1991-1992, A-deild, bls. 2415.
232