Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 106

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 106
Þegar það er virt, sem að framan er rakið, og með því að ekkert er fram komið sem skýrt getur hinar umdeildu ráðstafanir frá viðskiptalegu sjónarmiði, þykir bera að staðfesta þá niðurstöðu skattstjóra að hinar umdeildu ráðstafanir hafi verið þess eðlis að ekki verði á þeim byggt í skattalegu tilliti“. Hér má segja að um sýndargerninga sé að ræða gerða í þeim eina tilgangi að komast hjá greiðslu skatts. Litið er framhjá umræddum gemingum í skattalegu tilliti án sérstakrar tilvísunar til lagaákvæðis. H 1998 1094 (söluhagnaður fasteignar) Að endingu má vísa hér til dóms Hæstaréttar sem snerti túlkun á 25. gr. laga nr. 75/1981 og komu þar nokkuð til skoðunar sniðgöngusjónarmið við lögskýringuna. Mál þetta snerist um ákvörðun söluhagnaðar vegna jarðar, þ.e. hvort heimilt væri að miða útreikning söluhagnaðar vegna umræddrar sölu við sundurgreiningu sem byggðist á kaupsamningi um viðkomandi jörð. Akvæði 25. gr. laga nr. 75/1981 kveða á um að söluverði eigna, sem þar em tilgreind, skuli skipt í sama hlutfalli og hinar seldu eignir eru metnar til fasteignamats á söludegi. Hæstiréttur tekur fram að ljóst væri að tilgangur þessarar lagareglu væri að ná fram þeim markmiðum um meðferð söluhagnaðar sem að væri stefnt með ákvæðum laganna um hina ýmsu eignaflokka. Síðan segir: „I ákvæðinu er mælt fyrir um mælikvarða sem leggja skuli til grundvallar skattalegum útreikningi. Verður að telja mælikvarða þennan hlut- lægan og eðlilegan. Er og á það fallist með áfrýjanda (íslenska nkinu), að samkvæmt orðum ákvæðisins sé það fortakslaust að því leyti, að samningur aðila um skiptingu söluverðs geti ekki raskað þeirri skattalegu útreikningsreglu, er í því felst, enda myndi slíkt stríða gegn jafnræði skattþegna og vera andstætt ofangreindum mark- miðum laganna". 7.5 Álit umboðsmanns Alþingis þar sem byggt er á skattasniðgöngu- sjónarmiðum Álit umboðsmanns Alþingis frá 17. maí 1998 í málinu nr. 1931/1996 Málið snerti skattalega meðferð greiðslu úr kjaradeilusjóði Meinatæknafélags Islands. Yfirskattanefnd hafði komist að því að umrædd greiðsla væri skattskyld greiðsla samkvæmt 2. tölulið 1. mgr. A-liðar 7. gr. laga nr. 75/1981. Viðkomandi aðili taldi hér vera um lán að ræða úr kjaradeilusjóði en félagsmenn höfðu átt í kjaradeilu. I áliti sínu vísaði umboðsmaður Alþingis til 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar og tók síðan fram að lagareglur, sem kvæðu á um efnislega skattskyldu eða útfærslu skatta- reglna, vísuðu með beinum og óbeinum hætti til atvika er ráða skyldu skattskyldu og skattlagningu, þannig að tilteknar reglur eiga við tiltekin atvik. Síðan segir: „Viðurkennt er, að skattyfirvöldum er heimilt að leggja á það sjálfstætt mat, hvort atvik hafi verið með þeim hætti, að tiltekin lagaregla taki til þeirra, og eru skatt- yfirvöld þá ekki bundin við mat skattþegna á sömu atvikum eða yfirlýsingar þeirra um það. Með þessum hætti er reynt að tryggja, að gjaldendur skattsins, sem lrkt stendur á um í raun, hljóti eins eða svipaða meðferð, þegar kemur að álagningu skatta, enda þótt atvik kunni að vera önnur í orði kveðnu. 258
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.