Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 14

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 14
lögmanni rétt að koma á framfæri mótmælum og leiðréttingum við röngum og vill- andi fréttum af slíkum málum. Málefnaleg umræða og ritun um mál, sem er lokið og hafa faglega eða fræðilega þýðingu, skal og heimil t. d. á þingum lögfræðinga og í fræðitímaritum, en gæta skal nafnleyndar, þar sem við á. I vafatilvikum skal lögmaður ávallt hafa samráð við félagsstjórnina.7 Þessi grein siðareglnanna hafði sætt mikilli gagnrýni meðal lögmanna, en ýmsir þeirra töldu, að ákvæðin takmörkuðu tjáningarfrelsi þeirra verulega um- fram það, sem heimilt væri samkvæmt 73. gr. stjórnarskrár, og þegar tekið væri tillit til þess, að aðild að félaginu væri skyldubundin og því væri ekki unnt að líta svo á, að allir félagsmenn hefðu sjálfviljugir gengizt undir þessi ákvæði. Að þýðingu þessa ákvæðis og gildissviði þess verður vikið nánar í næsta kafla og í niðurstöðukafla greinarinnar. I þessu samhengi verður einnig að hafa hliðsjón af 8. gr. siðareglnanna, eins og hún er og var haustið 1999, það er: I samræmi við meginreglu 1. gr. skal lögmaður leggja sig fram um að gæta hags- muna skjólstæðinga sinna. Ber honum að vinna það starf án tillits til eigin hags- muna, persónulegra skoðana, stjómmála, þjóðemis, trúarbragða, kynþátta, kynferðis, kynhneigðar eða annarra utanaðkomandi atriða, er ekki snerta beinlínis málefnið sjálft. Lögmanni ber að forðast að samkenna sig skjólstæðingi sínum og hefur kröfu til að vera ekki samkenndur þeim sjónarmiðum og hagsmunum, sem hann gætir fyrir skjólstæðing sinn.8 I lögum um lögmenn nr. 77/1998 er m.a. kveðið á um skyldur lögmanna við skjólstæðinga sína, einkum í 18. og 22. gr. 18. gr. Lögmönnum ber í hvívetna að rækja af alúð þau störf sem þeim er trúað fyrir og neyta allra lögmætra úrræða til að gæta lögvarinna hagsmuna umbjóðenda sinna. 22. gr. Lögmaður ber þagnarskyldu um hvaðeina sem honum er trúað fyrir í starfi sínu. Starfsmaður lögmanns er einnig bundinn þagnarskyldu um slík trúnaðarmál sem hann kann að komast að vegna starfa sinna. Aður en lögmaður tekur að sér verk ber honum að vekja athygli þess sem til hans leitar ef hann telur einhverja hættu á að hagsmunimir sem í húfi eru kunni að rekast á hagsmuni hans sjálfs, venslamanna sinna eða annars umbjóðanda, eða að samsvarandi tormerki geti risið við rækslu starfans. 7 Tekið eftir útgáfu Lögmannafélags Islands, sem dreift var meðal lögmanna vegna aðalfundar árið 2000. 8 Sama útgáfa og heimasíða Lögmannafélags Islands. 208
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.