Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 61
síðustu þrjú ár, staðfestingu um skráð hlutafé félags, samþykktir og tímaáætlun
vegna skráningarinnar.
Samkvæmt 4. gr. reglna KÍ nr. 2 er gert ráð fyrir að tiltekið samráð eigi sér
stað á milli útgefanda og kauphallar um skipulag á vinnu við skráninguna. I
framkvæmd hefur reglan verið sú að áður en umsókn er send inn sendir
útgefandi kauphöllinni drög að skráningarlýsingu sem starfsmenn hennar fara
yfir og gera athugasemdir við. Þegar útgefandi hefur ákveðið endanlegt efni
skráningarlýsingarinnar sendir hann hana til kauphallar með umsókn um
skráningu.
Samkvæmt 2. mgr. 17. gr. kauphallalaga nr. 34/1998 skal kauphöll að jafn-
aði taka afstöðu til umsóknar um skráningu innan tveggja mánaða frá því að
endanleg umsókn barst. Hámarksfrestur til að taka afstöðu til umsóknar er sex
mánuðir. Ljóst er að hámarksfresturinn er óheppilega langur enda mikilvægt að
stuttur tími líði frá því að umsókn er lögð inn og þar til endanleg afstaða liggur
fyrir. Breytingar í atvinnulífinu eru örar og fyrirtækjum nauðsyn að fá erindi af
þessum toga afgreidd sem fyrst. Vegna þeirrar reglu, sem áður er getið um sam-
ráð við undirbúning og skipulagningu skráningar og þeirrar framkvæmdar að
kauphöll eru send drög að skráningarlýsingu til umfjöllunar áður en endanleg
umsókn er lögð fram, er ljóst að sá tímarammi sem tilgreindur er í 2. mgr. 17.
gr. khl. er óþarflega langur. í 25. gr. reglna KÍ nr. 2 hefur hámarkstíminn verið
takmarkaður við tvo mánuði.47
í 19. gr. skráningarreglugerðar nr. 434/1999 er að finna reglur um það með
hvaða hætti eigi að standa að birtingu skráningarlýsinga, sbr. einnig ákvæði 29.
gr. reglna KÍ nr. 2. Samkvæmt þeim reglum ber útgefanda að birta skráningar-
lýsinguna með nokkrum aðferðum. I fyrsta lagi ber að senda kauphöllinni
endanlega skráningarlýsingu. í öðru lagi skal útgefandi senda öllum þing-
aðilum eintak af henni. í þriðja lagi á annað hvort að birta skráningarlýsinguna
í heild sinni í a.m.k. einu dagblaði sem hefur almenna dreifingu eða vekja athygli
á því í dagblaðsauglýsingu hvar nálgast megi skráningarlýsinguna. Þessi síðast-
nefnda auglýsing skal fara fram a.m.k. fjórum dögum fyrir skráningardag eða
fyrsta söludag í útboði ef það á við. Skilyrði um almenna dreifingu dagblaðs
væri fullnægt með birtingu auglýsingar t.d. í Morgunblaðinu eða DV.
Auglýsing í Lögbirtingablaði mundi á hinn bóginn ekki uppfylla þetta skilyrði
þar sem það hefur ekki almenna dreifingu.
Meginhugsunin með birtingu skráningarlýsingar er að hún sé aðgengileg
fyrir fjárfesta. Af því leiðir að auglýsingar í dagblöðum, sem ekki innihalda alla
skráningarlýsinguna, verða að tilgreina með skýrum hætti hvar unnt sé að
47 Geta má þess að í Bandaríkjunum gildir sú regla að tveir mánuðir eiga að líða frá innlagningu
endanlegrar umsóknar þar til útboð getur farið fram. Hið sama gildir hins vegar um samráð
verðbréfaeftirlitsins þar (Securities and Exchanges Commission) og kauphallar hér á landi. Þá
tíðkast í Bandaríkjunum að framlengja frestina með því að leggja fram breytingar á skráningar-
lýsingu meðan athugun verðbréfaeftirlitsins fer fram. Sjá Hazen: The Law of Securities Regu-
lation, bls. 135-141.
255