Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 60
Þriðji flokkurinn tekur yfir ýmis tilvik, m.a. þegar um er að ræða litla við-
bót (innan við 10%) við fyrri útgáfur skráðra verðbréfa, fyrir liggur ábyrgð ríkis
eða sveitarfélags á skuldbindingum félags, útgáfa verðbréfa til starfsmanna o.fl.
í fjórða flokkinn falla verðbréf sem þegar hafa verið skráð í kauphöll hjá
öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu. Þrátt fyrir undanþáguna verður í þessu
tilvikum að birta tilteknar upplýsingar um verðbréfin, sbr. C lið 4. tl. 1. gr. við-
auka IV með reglugerð um opinbera skráningu verðbréfa.
Fimmti og síðasti flokkurinn tekur til þess tilviks þegar um er að ræða
skráningu hlutabréfa í félagi sem skráð hefur verið á skipulegum markaði á
Islandi í a.m.k. tvö ár, sem viðurkenndur er af íslenskum yfirvöldum og nægjan-
legar upplýsingar liggja fyrir um að mati kauphallar.
9.5.2 Heimildir til að takmarka efni skráningarlýsinga
Samkvæmt II. kafla IV viðauka skráningarreglugerðarinnar er kauphöll
heimilt að leyfa útgefanda verðbréfa að takmarka efni skráningarlýsinga við
tiltekna þætti við nánar tilgreindar aðstæður. Á þetta einkum við í þeim tilvikum
þegar verðbréfaflokkar frá útgefendum hafa þegar verið skráðir í kauphöll og
um verðbréf frá fjármálastofnunum og reglubundnar verðbréfaútgáfur.
9.5.3 Skaðlegar upplýsingar
Auk framangreindra heimilda til þess að veita undanþágu frá birtingu
upplýsinga í skráningarlýsingu er kauphöll heimilt að veita undanþágu ef upp-
lýsingarnar gætu talist skaðlegar fyrir útgefandann, sbr. 3. mgr. 17. gr. skrán-
ingarreglugerðar nr. 434/1999. Sambærilegt ákvæði er að finna í 3. mgr. 27. gr.
reglna KI nr. 2. Skilyrði fyrir undanþágu samkvæmt þessu ákvæði er að kaup-
höll telji að skortur á þessum upplýsingum muni ekki skaða markaðinn.
Ljóst er að þama togast á tvennir hagsmunir. Annars vegar hagsmunir fyrir-
tækis af því að halda viðkvæmum upplýsingum um reksturinn, til dæmis um
samkeppnisstöðu fyrirtækisins, samninga sem eru í deiglunni eða uppfinningar,
og hins vegar það grunnsjónarmið að tryggja fljótt fullnægjandi upplýsingar
fyrir fjárfesta um útgefanda. Gera má ráð fyrir að þessari undanþáguheimild
verði ekki beitt nema í sérstökum tilvikum og þegar fyrir liggja sterk rök fyrir
nauðsyn á að upplýsingum sé haldið leyndum.
10. SAMÞYKKI SKRÁNINGARLÝSINGAR, UMSÓKN OG BIRTING
Áður var þess getið að kauphöll þarf að samþykkja umsókn um skráningu,
en umsókninni fylgir skráningarlýsingin. I 11. gr. reglna KI nr. 2 eru tilgreindar
þær upplýsingar sem koma þurfa fram í umsókn um skráningu. Ekki er um að
ræða miklar upplýsingar enda koma allar þýðingarmestu upplýsingamar fram í
skráningarlýsingunni. Umsóknin skal undirrituð af stjórn félagsins. Þá er mælt
fyrir um það í 12. gr. reglnanna hvaða upplýsingar eiga að fylgja umsókn. Auk
skráningarlýsingar ber að leggja fram endurskoðaða reikninga félagsins fyrir
254