Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 88

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 88
háttar nýmæli eru einnig oftast til þess fallin að vekja athygli í samfélagi lög- lærðra manna víða um heim, einkum þó meðal þeirra, er láta sig varða saman- burðarlögfræði og önnur fjölþjóðleg sjónarhom lögfræðinnar. A það vitaskuld öðru fremur við, þegar stórþjóð, sem er og hefur lengi verið mjög í sviðsljósinu, eignast vandaða borgaralögbók, sem ber með sér mikið fráhvarf frá eldri réttarreglum, er voru alkunnar, a.m.k. í megindráttum, og höfðu á sinni tíð afar mikil áhrif víða um heimsbyggðina. Ur réttarsögu ýmissa Vestur-Evrópuþjóða eru dæmin um lögtöku nýrra og gagnmerkra lögbóka mörg og alkunn, og nægir hér að nefna hinar frægu borgaralögbækur Frakka, Þjóðverja og Svisslendinga, sem lengi hafa sætt mikl- um rannsóknum og hafa haft umtalsverð áhrif utan heimalandanna, en margar aðrar öndvegislögbækur mætti vissulega nefna. Meginreglan er nú sú meðal allra ríkja á meginlandi Evrópu vestanverðu, að þar eru í gildi viðamiklar lög- bækur á sviði einkamálaréttarins. Er stofn sumra þeirra nokkuð kominn til ára sinna, en þær hafa þá sætt breytingum á áranna rás til samræmis við aðstæður á hverjum tíma. Sem dæmi um nýlega lögbók vestur-evrópskrar grannþjóðar okkar, sem þykir almennt gagnmerk og mjög vel heppnuð, er lögbók Hollend- inga. Við samningu hennar, sem tók langan tíma, enda vel vandað til verka, var m.a. í ríkurn mæli byggt á aðferðum samanburðarlögfræðinnar - og með góðum árangri að flestra dómi. Nýjasta lögbók heims, a.m.k. meðal hinna stærri þjóða, er borgaralögbók Rússa, sem öðlast hefur gildi í áföngum á síðustu árum, þriðji hluti hennar 1. mars 2002. Má hún jafnframt teljast gagnmerk sökum efnis síns og aðstæðna allra, svo sem brátt mun vikið nánar að. Mörg þau ríki Austur-Evrópu, sem áður voru á áhrifasvæði Sovétríkjanna (öðru nafni Ráðstjórnarríkjanna) og aðhylltust í megindráttum þær stjómmála- kenningar, er þar voru ráðandi um áratuga skeið, hafa einnig sett sér borgara- lögbækur á síðari árum, sem mjög eru sniðnar að vestrænni fyrirmynd og eiga að hæfa nýjum aðstæðum um stjórnarfar og hagstjóm, þar sem m.a. er byggt á ríkum kröfum til lýðræðis og frjáls markaðsbúskapar. Aður en ríki þessi komust undir jámhæl Sovétmanna voru þar yfirleitt í gildi einkaréttarlögbækur, sem misstu að verulegu leyti mátt sinn á áranna rás undir þeirri stjórnarstefnu, sem þá var haldið uppi, en gátu um síðir þjónað sem fyrirmynd um efni nýrra lög- bóka að því marki, sem ráðlegt þótti og aðstæður leyfðu. Eftir upplausn Sovétríkjanna árið 1991 á hið sama við um lang flest þau ríki, sem áður áttu aðild að því volduga sambandsríki, en urðu nú fullvalda í kjölfar þeirra umskipta. Þau hafa sett sér nýjar borgaralögbækur, sem um sumt voru samdar undir beinum áhrifum frá ýmsum lögbókum Vestur-Evrópuríkja og annarra vestrænna fyrirmynda í löggjafarmálum, auk mjög sterkra efnistengsla við rússnesku lögbókina nýju, sem brátt verður fjallað nánar um, en bera þó einnig sérstakt svipmót, sem á sér aðrar og „þjóðlegar“ rætur. Þær lögbækur taka einnig mið af hinu nýja umhverfi í stjómmálum og efnahagsmálum í hlutað- eigandi ríkjum, þar sem sem mikil ólga ríkir þó víða enn á sviði löggjafarmála og reglusetningar samfara ókyrrð í samfélagi og óvissu um framtíðarhorfur. 282
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.