Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 96

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 96
embættið og undir yfirumsjá þess.10 Meginhlutverk þessarar stofnunar hefur verið og er enn að skipuleggja og samræma allt hið mikla og flókna starf við samningu einkaréttarlögbókarinnar og undirbúa lögtöku hennar stig af stigi, eins og brátt verður nánar vikið að. Jafnframt er sérstakur skóli (akademía fyrir lögfræðinga í framhaldsnámi), er tengist þessum nýju einkaréttarfræðum, rekinn í nánum tengslum við stofnunina. Hefur stofnunin á að skipa allmörgum sérfræðingum í fullu starfi, sem sinna þeim verkefnum, er hér voru nefnd, en við lögbókarstarfið og skyld verkefni, þ. á m. kennsluna, hefur þó í mjög rfkum mæli verið stuðst við vinnuframlag allmargra kunnra fræðimanna í lögum, ekki síst háskólaprófessora (t.d. frá ríkisháskólunum í Moskvu og St. Pétursborg), sem samið hafa drög að köflum bókarinnar, er tengjast sérsviðum þeirra, en jafnframt hefur verið kallað eftir ráðgjöf ýmissa annarra fagmanna svo sem hagfræðinga. Hefur umrædd stofnun síðan leitt samstarf þessara manna, skipu- lagt sameiginlega fundi þeirra allra eða færri í einu, yfirfarið drög þeirra að einstökum ákvæðum og köflum, kallað eftir viðbrögðum eða gagnrýni annarra fræðimanna - og séð um samskiptin við erlenda fræðimenn, sem komið hafa að verkinu í ráðgjafarhlutverki. Allt frá vori 1992 hefur starfað sérstök lögbókamefnd undir forystu yfir- manns fyrmefndrar stofnunar, og er hún ekki einvörðungu skipuð löglærðum mönnum heldur einnig fulltrúum annarra faglegra sérsviða og vissra greina atvinnulífsins. Vert er að geta þess sérstaklega, að frá upphafi lögbókarstarfsins hefur verið lögð áhersla á gott og virkt samstarf við ýmsa lögvísindamenn frá Vesturlönd- um, einkum frá Vestur-Evrópu, en einnig frá Bandaríkjunum og Kanada. Lög- bókamefndin, sem áður var getið um, fór, ásamt starfsmönnum sínum, all- margar kynnis- og viðræðuferðir til Þýskalands, Italíu, Kanada (fyrst og fremst til Quebec, þar sem byggt er á lögbókarhefð í frönskum anda og ný og vönduð lögbók tók gildi fyrir nokkrum árum) og einnig Bandaríkjanna. Sýndu margir fræðimenn frá þessum löndum frá upphafi þessu lögbókarverki í Rússlandi mikinn áhuga og veittu drjúga sérfræði- og ráðgjafaraðstoð í því sambandi. Fyrir allnokkrum árum var t.d. komið á mjög virkum tengslum milli rússnesku rannsóknarstofnunarinnar í einkamálarétti annars vegar og sérstakrar fræði- stofnunar innan lagadeildar McGill-háskólans í Montreal í Quebec hins vegar, en sá háskóli hefur m.a. beitt sér mjög fyrir rannsóknum á sviði samanburðar- 10 í maímánuði 2002 heimsótti greinarhöfundur þessa stofnun og ræddi þar við yfirmenn um starfsemi hennar og samningarferil borgaralögbókarinnar nýju, einkum dr. Alexey N. Zhiltsov og dr. Oksana M. Kozyr, sem bæði hafa tekið virkan þátt í samningu tiltekinna kafla lögbókarinnar auk hvers kyns stjómunarstarfa á því sviði. I sömu kynnisferð til Rússlands átti höfundur þess einnig kost að fræðast um lögbókarstarfið og um mörg önnur atriði, er varða rússneskan rétt og lagakennslu, með viðtölum við prófessor Evgyeni A. Sukhanov, forseta lagadeildar ríkisháskólans í Moskvu, sem er mjög kunnur og áhrifamikill lögvísindamaður, og prófessor Aiexander P- Sergeev, forstöðumann einkamálaréttarskorar lagadeildar ríkisháskólans í St. Pétursborg, en báðir hafa þeir tekið virkan þátt í lögbókarstarfinu, hinn fyrmefndi allt frá upphafi, og samið mikilvæga kafla bókarinnar. Þá var og rætt við ýmsa aðra lagakennara í St. Pétursborg. 290
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.