Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 70

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Blaðsíða 70
góður og gegn stjómarmaður myndi hegða sér. í ljósi þessarar miklu ábyrgðar, sem fylgir störfum stjómarmanna í félögum, og í því skyni að takmarka eins og kostur er áhættu stjórnmanna á því að mistök verði í upplýsingagjöfinni, verður að telja sjálfsagt mál fyrir stjórnarmenn félaga að gera þá kröfu að í tengslum við gerð skráningarlýsinga fari fram áreiðanleikakönnun á félaginu. 14.3.2 Umsjónaraðili með skráningu I 3. mgr. 18. gr. skráningarreglugerðar nr. 434/1999 segir að umsjónaraðili skuli lýsa því yfir að hann hafi aflað þeirra gagna sem að hans mati voru nauðsynleg til þess að skráningarlýsingin gefi rétta mynd af útgefanda og verðbréfum hans og að hans mati sé engu atriði sleppt sem áhrif getur haft á mat á útgefanda og verðbréfum hans, sem óskað er skráningar á. Af þessum orðum er ljóst að skyldur umsjónaraðila eru mjög víðtækar. Athugunarefni er hverjir falla undir það að vera umsjónaraðilar samkvæmt þessu ákvæði. I skráningarreglugerðinni er þetta hugtak ekki skýrt nánar. í regl- um KI nr. 2 um opinbera skráningu verðbréfa er hugtakið einnig notað í 5. tl. 11. gr. og 4. tl. 18. gr. sem fjalla um umsókn um skráningu hlutabréfa og skulda- bréfa. Þar kemur fram að tilgreina beri milligönguaðila útgefanda við þingið og umsjónaraðila útboðsins/útgáfunnar. Akvæði þessi virðast gera ráð fyrir að um- sjónaraðili sé eingöngu tilgreindur þegar útboð á verðbréfum fer fram samhliða skráningu. Samkvæmt 28. gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfaviðskipti skulu almenn útboð á verðbréfum almennt fara fram fyrir milligöngu verðbréfafyrir- tækja eða annarra aðila sem hafa til þess heimild samkvæmt lögum. Algengast er að fyrirtæki sem stundar verðbréfaþjónustu hafi umsjón með skráningarlýs- ingum og þá útboðum sem tengjast skráningu. Hins vegar mælir ekkert á móti því að umsjónaraðili með skráningarlýsingu skv. 3. mgr. 18. gr. skráningar- reglugerðarinnar geti verið t.d. lögmenn eða endurskoðendur. Samkvæmt áðurgreindu ákvæði í 3. mgr. 18. gr. skráningarreglugerðarinnar lýtur skylda umsjónaraðila að því að afla gagna til þess að skráningarlýsingin gefi rétta mynd af útgefandanum og verðbréfunum sem taka á til skráningar. Þá ber umsjónaraðilanum að sjá til þess að engu atriði sé sleppt sem getur haft áhrif á matið á útgefandanum og verðbréfunum. Til þess að umsjónaraðili, sem er utanaðkomandi, geti sinnt þessari skyldu er ljóst að hann verður að fá sérfræð- inga, lögmenn og endurskoðendur, til þess að framkvæma áreiðanleikakönnun á útgefandanum. Fara verður yfir alla þætti í uppbyggingu fyrirtækisins og starfsemi þess til að ganga úr skugga um að þær upplýsingar sem fram koma í skráningarlýsingunni séu réttar, þær settar fram með fullnægjandi hætti og að engum upplýsingum sem máli skipta sé sleppt. Til upplýsingar má hér vísa til atvika Hafniamálsins, sem reifað er hér á eftir, en í því máli var gerð bótakrafa á hendur umsjónaraðila vegna ófullnægjandi upplýsinga í skráningarlýsingu þrátt fyrir að endurskoðendur hefðu komið að gerð fjárhagslegra upplýsinga í 264
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.