Tímarit lögfræðinga - 01.10.2002, Síða 58
9.3 Nánar um efni skráningarlýsinga
I 31. gr. reglugerðar nr. 434/1999 er tekið fram að skráningarlýsingar eigi að
vera á íslensku. Frá þessu má þó veita undanþágu ef ríkar ástæður mæla með
því, t.d. ef skráningarlýsing hefur verið samþykkt í öðru ríki innan Evrópska efna-
hagsvæðisins.
I viðaukum I - III við reglugerð nr. 434/1999 um opinbera skráningu verð-
bréfa í kauphöll eru sett fram í fjölmörgum liðum ákvæði um það hvers efnis
skráningarlýsingar eigi að vera. Viðauki I fjallar um hlutabréf, viðauki II um
skuldabréf og viðauki III um heimildarskírteini fyrir hlut. Samkvæmt 2. mgr. 17.
gr. reglugerðarinnar eru þau atriði sem tilgreind eru í viðaukunum lágmarks-
kröfur um efni skráningarlýsinga og verða útgefendur að gæta þess að allar upp-
lýsingar sem þar eru tilgreindar komi fram. Þrátt fyrir þetta ákvæði verður að
hafa í huga að ekki er víst að öll atriðin sem tilgreind eru í viðaukunum eigi við
um viðkomandi útgefanda, þannig að skráningarlýsingar þurfa ekki endilega að
innihalda allar þær upplýsingar sem tilgreindar eru í viðaukunum. Þá ber einnig
að gæta þess að þar sem í viðaukunum eru settar fram lágmarkskröfur verða
útgefendur sjálfstætt að meta það í hverju tilviki hvort þörf sé á viðbótarupp-
lýsingum til þess að fjárfestar geti metið virði hinna skráðu verðbréfa.
Ekki er tilefni til þess að rekja efni viðaukanna lið fyrir lið í umfjöllun þess-
ari heldur verður látið nægja að vísa til þeirra um nánara efni. Rétt er þó að geta
helstu flokka upplýsinga sem þurfa að koma fram í skráningarlýsingu sam-
kvæmt viðauka I um hlutabréf en þeir eru:
a. Upplýsingar um þá sem ábyrgjast skráningarlýsinguna og endurskoðun reikninga.
b. Lýsing á efni og réttindum hlutabréfa sem óskað er skráningar á.
c. Upplýsingar um útgefanda og hlutafé hans.
d. Lýsing á starfsemi útgefandans.
e. Upplýsingar urn eignir og skuldir útgefanda, fjárhagslega stöðu og afkomu.
f. Upplýsingar um stjóm, framkvæmdastjóra og eftirlit.
g. Upplýsingar um nýlega þróun og horfur hjá útgefanda.
Efni skráningarlýsinga skv. viðauka II, þegar óskað er skráningar á skulda-
bréfum, er flokkað með mjög svipuðum hætti og þegar um hlutabréf er að ræða.
Vísast því til þess sem að framan greinir um þau ákvæði sem koma þurfa fram
í skráningarlýsingu skuldabréfa.
Viðauki III, sem fjallar um skráningarlýsingu heimildarskírteina, gerir tals-
vert minni kröfur en þegar um er að ræða hlutabréf eða skuldabréf. Viðaukanum
er skipt í tvo kafla, annars vegar upplýsingar um útgefanda og hins vegar upp-
lýsingar um heimildarskírteinin sjálf.
9.4 Nýjar upplýsingar og viðaukar við skráningarlýsingu
Efni skráningarlýsingar miðast við stöðu útgefanda við birtingu hennar.
Aðstæður fyrirtækja sem stunda atvinnurekstur breytast hins vegar frá einunt
degi til annars. Þannig geta komið upp atvik í starfsemi fyrirtækjanna eftir að
252