Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 5

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 5
vinnu. Hér þarf því að fara varlega og gæta þess að láta ekki fjölmiðlagleðina glepja sig. Hins vegar skal bent á að miklar líkur eru til þess að samfara stór- auknum málafjölda og viðleitni dómara til þess að halda þeim málshraða sem náðst hefur á undanfömum ámm megi búast við því að engin tök verði á fyrir þá að liggja lengi yfir forsendum dóma og úrskurða, allra síst þegar niðurstaðan er frá upphafi nokkuð ljós. Tilefni þess fundar sem að framan er getið var án efa þær heimildir sem Samkeppnisstofnun hafa verið veittar að undanfömu til húsleitar hjá fyrirtækj- um sem gmnuð eru um brot á samkeppnislögum. Segja má að húsleitir af þessu tagi beinist bæði að öðmm aðilum og annars konar meintum brotum en þeim sem tíðast er verið að rannsaka þegar húsleitarheimildar er aflað. Að baki þess- um aðilum standa sterk samtök sem ber skylda til að verja hagsmuni skjólstæð- inga sinna. Grundvöllur húsleitar er hins vegar sá hinn sami, þ.e. meint brot á lögum. Samkvæmt 40. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993 getur Samkeppnisstofnun aflað sér húsleitarheimildar og er lagagreinin svohljóðandi: 1. mgr. Samkeppnisstofnun getur við rannsókn máls gert nauðsynlegar athuganir á starfs- stað fyrirtækis og lagt hald á gögn þegar ríkar ástæður eru til að ætla að brotið hafi verið gegn lögum þessum eða ákvörðunum samkeppnisyfirvalda. 2. mgr. Við framkvæmd aðgerða skv. 1. mgr. skal fylgja ákvæðum laga um meðferð opin- berra mála um leit og hald á munum. Hér er vísað til laga um meðferð opinberra mála um framkvæmd húsleita Samkeppnisstofnunar. Því hefur verið haldið fram að þau ákvæði sem í þeim lögum eru, og fyrr eru rakin, dugi ekki til þess að tryggja að húsleit fari fram með þeim hætti að réttur þess sem hún beinist að sé nægilega tryggður. Þess vegna þurfi að setja sérstakar reglur um húsleitir af þessu tagi m.a. til að tryggja samræmi við reglur í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu sviði. Akveðnastar skoðanir um þetta koma fram hjá samkeppnislagahópi Samtaka atvinnulífsins í skýrslu sem gefin var út í maí 2002 og nefnist Samkeppnishæf samkeppnislög og er þar um samræmi milli ríkja EES vísað til bókunar 4 við samning EFTA-ríkjanna um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Sýnist skýrsla þessi harla vel unnin en í henni eru lagðar til ýmsar breytingar á samkeppnis- lögunum sem ekki verða raktar hér að öðru leyti en því að minnast aðeins á þær breytingar á ákvæðunum um húsleit sem taldar eru nauðsynlegar. Auk þess að leggja áherslu á að meðalhófs sé gætt við vettvangsrannsókn, sem skilið verður svo að ekki sé meira rannsakað en þörf krefur, þá leggur nefndin til: að gefnar verði úr vinnureglur fyrir Samkeppnisstofnun um leit og haldlagningu gagna þar sem m.a. verði kveðið á um heimildir til að taka gögn, ljósrit, skýrslur og tölvugögn, heimild til að kalla til lögmann o.fl. Leit verði framkvæmd af starfs- mönnum Samkeppnisstofnunar en ekki öðrum sem til þess eru fengnir. 309
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.