Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 15

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 15
Bent hefur verið á þann ágalla, að þessi lýsing á inntaki skilyrðiskenn- ingarinnar sé óljós og í raun hugarsmíð. Eðlilegra sé að orða skilyrðið svo:12 Atvik er orsök tjóns, ef það eitt eða með öðrum atvikum hefur eiginleika, sem geta valdið því tjóni, og þessir eiginleikar hafa verið leystir úr læðingi og leitt til tjónsins. Síðastgreind útlistun kann að vera til bóta. Kjami málsins er þó sá, að krafizt er, að orsök sé nauðsynlegt skilyrði tjóns, til þess að um bótaábyrgð sé að ræða. Þess er á hinn bóginn ekki krafizt, að orsök sé nægjanlegt skilyrði tjóns, það felst í þeirri staðreynd, að orsök þarf ekki að vera meginorsök eða eina orsök tjóns. Þegar margar orsakir verka saman, má oft segja, að hver þeirra um sig hafi verið nauðsynlegt skilyrði þess að tjón varð, en oft er aðstaðan sú, að hver þeirra um sig var ekki nægjanlegt skilyrði tjónsins. Samt getur sá, er ber ábyrgð á slíkri orsök, orðið skaðabótaskyldur.131 raun er þó aðstaðan oftast sú, að orsök er hvort tveggja í senn nauðsynlegt og nægjanlegt skilyrði tjóns. 2.5.2 Skilyrðiskenningin. Mismunarkenningin Skilyrðiskenningin miðar við, að fram fari samanburður á tveimur atburða- rásum, þ.e. þeirri sem varð í raun og annarrar sem ætla má að hefði orðið, ef háttsemin hefði ekki verið viðhöfð. Þessi aðferðafræði er algeng í skaða- bótarétti og er oft nefnd „mismunarkenningin“ (d. differencelæren).14 Þessari aðferðafræði er t.d. beitt við mat á varanlegri örorku, þar sem bera þarf saman tvær atburðarásir, til þess að ákvarða atvinnuþátttöku tjónþola í framtíðinni, þ.e. annars vegar þá atburðarás, sem varð og verður í framtíðinni að teknu tilliti til líkamstjónsins, og hins vegar þá atburðarás, sem ætla má að orðið hefði, ef líkamstjónið hefði ekki komið til. Mismunur sá, sem þannig fæst á framtíðar- atvinnuþátttöku tjónþola, er helzti leiðarvísirinn um varanlega örorku hans samkvæmt 5. gr. skaðabótalaga, nr. 50/1993. I mismunarkenningunni felst því að gera verður kröfu til þess, að orsök sé nauðsynlegt skilyrði þess, að atburða- rásin verður öðru vísi en ella hefði orðið. Skilyrðiskenninguna má þó ekki skilja bókstaflega, því það gengi of langt. Á beitingu kenningarinnar án fyrirvara eru a.m.k. þrenns konar annmarkar. í fyrsta lagi verður að gera takmarkanir vegna mjög fjarlægra orsaka. Fram- leiðendur skotvopna yrðu, ef skilyrðiskenningunni væri fylgt án fyrirvara, ævinlega ábyrgir fyrir tjóni af völdum skotvopna, því framleiðsla þeirra er nauðsynlegt skilyrði þess, að skotvopni verði beitt. I slíkum tilvikum þyrfti að taka afstöðu til fjölda atvika, sem segja má að uppfylli kröfuna um að vera nauðsynlegt skilyrði fyrir tjónsatburði. Það er engin ástæða til slíks bókstafs- 12 Nils Nygaard: „Ársaksspdrsmál og ársakslærer i skadebotretten". Rettsteori og rettsliv, bls. 630. 13 Sjá t.d. Bo von Eyben og Hans Henrik Vagner: Lærebog i erstatningsret, bls. 273-274; Jan Hellner og Svante Johansson: Skadestándsrátt, bls. 197-198 og Peter I.odrup: Lærebok i erstatningsrett. bls. 300-304. 14 Um þessa kenningu má m.a. vísa til Jan Hellner og Svante Johansson: Skadestándsratt, bls. 359-361 og Peter Lodrup: Lærebok i erstatningsrett, bls. 296-300. 319
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.