Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 38

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 38
H 1988 324 Húsbyggjandi í Mosfellsbæ taldi, að orsök galla í nýbyggðu húsi hans mætti rekja til mistaka við val á fyllingarefni í grunn og við gerð undirstöðu. Hann taldi sig hafa farið eftir leiðbeiningum byggingarfulltrúa sveitarfélagsins við þessa verkþætti. Hann höfðaði mál til heimtu skaðabóta á hendur nokkrum aðiljum, m.a. sveitar- félaginu. Um kröfu hans á hendur sveitarfélaginu segir í forsendum dóms Hæsta- réttar, að ákvæði byggingarsamþykkta um eftirlit byggingamefnda með því, að fylgt sé fyrirmælum í löggjöf um styrkleika og burðarþol húsa við byggingu þeirra, séu sett vegna almannahagsmuna og til að efla almennt öryggi. Er svo rakið, að iðn- meistarar beri samkvæmt byggingarreglugerð ábyrgð á þeim verkþætti, sem um ræddi, og ekki væri sannað að byggingarfulltrúinn hefði bakað sveitarfélaginu skaða- bótaskyldu með athöfnum sínum eða athafnaleysi. Rökstuðningur þessi er í samræmi við rökstuðning í H 1967 225 (rökstuðn- ingur í héraðsdómi) og H 1987 1299, en í þeim dómum báðum hafði húsbyggj- andi uppi kröfur um bætur vegna mistaka í byggingareftirliti sveitarfélags.49 Eftirlit með skipum Ríkið rekur umfangsmikið eftirlit með skipum. Til dómstóla hafa komið mál, þar sem ríkið er krafið um skaðabætur vegna tjóns, er leitt hefur af mis- tökum við slíkt eftirlit. í H 1958 134 og H 1970 1085 er í báðum tilvikum fjallað um kröfu kaupanda báts, sem taldi sig hafa mátt treysta því, að haffærnis- skírteini báts væri reist á raunverulegu ástandi hans, sem í báðum tilvikum reyndist rangt. Ríkið var sýknað af kröfunum í báðum málunum með sama rök- stuðningi, sem var svohljóðandi: Ákvæði laga nr. 68/1947 um opinbert eftirlit með skipum miða að því að efla almennt öryggi sjófarenda. En skýrsla um skoðun skips, sem hinir opinberu skoð- unarmenn gefa samkvæmt lögum þessum, og meðmæli þeirra með því að skip fái haffæmisskírteini, eru ekki ætluð til að vera einhlít sönnunargögn til ákvörðunar í fjármunaréttarlegum viðskiptum aðilja um skip. Verður rikissjóður ekki krafinn skaða- bóta fyrir tjón, sem aðili kann að hafa hlotið af slíkum viðskiptum, þótt í Ijós komi, að skoðun starfsmanna skipaeftirlitsins hafi ekki verið framkvæmd með þeirri kost- gæfni, er skyldi. Ekki er kunnugt um dóma þar sem sá, er eftirlitið beinist gegn, lætur reyna á bótarétt sinn vegna saknæmra mistaka við það. Unnt er að minnsta kosti að segja, að reglur um opinbert eftirlit með skipum hafi ekki þann tilgang að vemda þann, sem verður fyrir tjóni við kaup á skipi vegna þess að hann treystir því, að ekki hafi verið gerð mistök við eftirlitið. 49 Rétt er að geta þess hér, að til eru dómar, þar sem sveitarfélag er dæmt bótaskylt í svipuðum tilvikum, sbr. H 1961 830 og H 1971 71. Ekki er þó víst, að mál það, sem dæmt var í fyrrnefnda dóminum, teljist alveg sambærilegt. 342
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.