Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Page 56
2. SKÝRING VERKNAÐARLÝSINGA XIV. KAFLA HGL.
2.1 Almenn atriði
Kaflinn hefur að geyma fjórtán refsiákvæði sem eru greinar nr. 128-141 í
hgl. Þessi ákvæði hafa ekki sætt efnislegum breytingum frá gildistöku laganna
að undanskildum þeim sem voru samfara afnámi varðhalds sem refsitegundar,
sbr. 51.-61. gr. laga nr. 82/1998. Við skýringu verknaðarlýsinga XIV. kafla hgl.,
eins og að jafnaði við önnur ákvæði laganna, er rétt og nauðsynlegt að líta til
danskra dóma og fræðirita enda eru hgl. að meginstefnu til þýðing á dönsku
hegningarlögunum (Borgerlig Straffelov) sem að stofni til eru frá 1930.4
Draga má þá ályktun af verknaðarlýsingum ákvæða XIV. kafla hgl. að staða
hins opinbera starfsmanns virðist hafa verið ráðandi við mótun þeirra. I því
sambandi ber hins vegar að árétta að almennt er talið að eðli vinnusambandsins
á milli starfsmannsins og hins opinbera ráði ekki úrslitum um stöðu hans sam-
kvæmt XIV. kafla hgl. eins og leiðir raunar af lögskýringargögnum.5 Því kann
t.d. að verða litið til þess hvaða verkefni umræddur starfsmaður innti í reynd af
hendi í starfi sínu hjá hinu opinbera, sbr. til hliðsjónar H 1988 990.
í H 1988 990 var Ó ákærður fyrir að hafa sem fulltrúi og aðalgjaldkeri á bréfa- og
póststofu Pósts og síma, Akureyri, dregið sér með beinum fjártökum úr sjóðum, sem
voru í vörslum ákærða, rúmar sjö milljónir króna. Var háttsemi þessi talin varða við
„1. mgr., sbr. 2. mgr. 247. gr. sbr. 138. gr.“ hgl. í dómi Hæstaréttar, sem staðfesti
héraðsdóm um sakfellingu ákærða en lækkaði refsingu í 12 mánaða óskilorðsbundið
fangelsi, sagði m.a. svo: „Brot sitt framdi ákærði í opinberu starfi hjá Pósti og síma
á Akureyri, þar sem hann var ráðinn til starfa 1. september 1969 og skipaður fulltrúi
í umdæminu 1. janúar 1981. Hann varekki æðsti yfirmaður tjármála póstmiðstöðvar-
innar á Akureyri, en sem fulltrúi annaðist hann verkstjórn á bréfapóststofu ásamt
almennri afgreiðslu og sá um uppgjör sjö gjaldkera póststofunnar jafnframt því að
annast innlögn peninga póststofunnar á reikning í banka. Hann gegndi þannig í
reynd hlutverki aðalgjaldkera á póststofunni, eins og talið er í ákæru, enda þótt hann
væri ekki formlega skipaður í það starf‘.
Verknaðarlýsingar XIV. kafla hgl. eru um margt sérstæðar í refsilöggjöfinni.
Þær fela t.d. í sér undantekningu frá grunnreglu íslensks refsiréttar um að
sérhver lifandi maður geti almennt talist gerandi í refsiréttarlegu tilliti með því
að vinna tiltekinn frumverknað.6 Með refsipólitískri ákvörðun löggjafans hefur
gerendahópur XIV. kafla hgl. verið afmarkaður við þá einstaklinga sem hafa
ákveðið starf á hendi sem tengist með beinum eða óbeinum hætti framkvæmd
4 í eftirfarandi umfjöllun verður því á viðeigandi stöðum vísað til refsiákvæða 16. kafla dönsku hgl.
um brot í opinberri þjónustu eða starfi o.fl. (d. Forbrydelser i offentlig tjeneste eller hverv m.v.) til
frekari skýringar og samanburðar.
5 Alþt. 1939, A-deild, bls. 377.
6 Jónatan Þórmundsson: Afbrot og refsiábyrgð I. Háskólaútgáfan, Reykjavík (1999), bls. 36.
360