Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Blaðsíða 85
5. LÖGGJÖF UM STÖRF HJÁ HINU OPINBERA
í 6. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (hér eftir
starfsmannalög), er að finna aðallagaboðið á þessu sviði. I 5. tl. er að finna það
ákvæði sem mesta þýðingu hefur í því samhengi sem hér er til skoðunar.
Ákvæðið er svohljóðandi:
Almenn skilyrði til þess að fá skipun eða ráðningu í starf eru þessi:
1. Átján ára aldur. Þó má víkja frá þessu aldurslágmarki um störf samkvæmt náms-
samningi, ræstingastörf, sendilsstörf eða önnur svipuð störf. Einstök ákvæði í
lögum, þar sem annað aldurstakmark er sett, skulu haldast.
2. Lögræði. Þó gildir lögræðiskrafan ekki þegar undanþága er gerð skv. 1. tölul.
3. Nauðsynleg heilbrigði, andleg og líkamleg, til þess að gegna þeim starfa sem
hverju sinni er um að ræða.
4. íslenskur ríkisborgararéttur. Þó má ráða ríkisborgara frá öðrum ríkjum Evrópska
efnahagssvæðisins til starfa með sömu kjörum og íslenska rrkisborgara. Einnig
má víkja frá þessu ákvæði þegar um er að ræða aðra erlenda ríkisborgara ef sér-
staklega stendur á.
5. Almenn menntun og þar að auki sú sérmenntun sem lögum samkvæmt er
krafist eða eðli málsins samkvæmt verður að heimta til óaðfinnanlegrar
rækslu starfans. (Leturbr. höf.)
6. Fjárforræði, ef starfi fylgja fjárreiður, svo sem gjaldkera- eða innheimtustörf, eða
ef svo er fyrir mælt í lögum eða sérstök ástæða þykir til að gera þá kröfu.
Nú hefur umsækjandi um starf hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað, slíkan sem um
ræðir í 1. mgr. 68. gr. almennra hegningarlaga, og telst hann þá ekki fullnægja starfs-
skilyrðum.
Konur og karlar hafa jafnan rétt til opinberra starfa og til sömu launa fyrir sambæri-
leg störf.
Af lagaákvæði þessu má sjá að af þeim eiginleikum sem hér eru sérstaklega
til skoðunar, þ.e. menntun, reynsla og persónuleiki, er eingöngu minnst á mennt-
unina. Hins vegar kemur fram í 7. tl. 4. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar
á lausum störfum, sem settar eru með stoð í 7. gr. starfsmannalaga sem kveður
á um skyldu til að auglýsa opinber störf, að í auglýsingum um laust starf skuli
koma fram [h]vaða menntunar- ogleða hœfniskröfur gerðar eru til staifs-
manns. Er þama væntanlega komin tilvísun í að starfsmaður skuli hafa ein-
hverja tiltekna reynslu og jafnvel einhverja sérstaka persónueiginleika!
Framangreind ákvæði gefa að öðm leyti í raun ekki mikla leiðbeiningu um
hvað skuli ráða þegar verið er að velja á milli nokkurra umsækjenda. Eingöngu
er minnst á almenn hæftsskilyrði þannig að fullnægi margir umsækjendur al-
mennum hæfisskilyrðum þá þarf að leita annað til að finna hvað skuli ráða því
hver fái starfið. í 4. gr. reglna nr. 464/1996 segir að í auglýsingu um laust starf
skuli að minnsta kosti vera upplýsingar um þar til greind atriði. Af því virðist
mega ráða að gera megi frekari kröfur til umsækjenda og þá væntanlega einnig
389