Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Qupperneq 91
Höfundur þessarar greinar er þeirrar skoðunar að í framangreindu áliti
umboðsmanns Alþingis komi fram með ótvíræðum hætti að við veitingu opin-
berra starfa megi veitingarvaldshafi byggja á persónueiginleikum og „verð-
leggja“ þá hærra en aðra eiginleika, s.s. menntun og reynslu, svo framarlega
sem lög áskilja ekki annað og málefnalegra sjónarmiða sé gætt. Þessari niður-
stöðu til stuðnings má enn fremur benda á álit umboðsmanns Alþingis í máli nr.
3245/2001, sem lokið var 5. febrúar 2002, en þar segir m.a:
Þá legg ég áherslu á að það verður ekki talið hlutverk umboðsmanns Alþingis að
hagga mati handhafa veitingarvalds á því hversu heppilegt það sé að leggja tiltekin
málefnaleg sjónarmið til grundvallar veitingu á opinberu starfi.
[...] Með hliðsjón af eðli þessa mats, sem verður ávallt að ákveðnu marki háð óvissu
sem ekki verður undan vikist, tel ég rétt að játa stjómvöldum almennt rúmt svigrúm
við það mat og tekur endurskoðun umboðsmanns á þessu atriði mið af því.
8. DÓMAR
8.1 Héraðsdómur
Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu nr. E-3419/2001, Kolbrún
Sævarsdóttir gegn íslenska ríkinu, er um margt forvitnilegur í tengslum við það
álitaefni sem hér er til skoðunar. Mál þetta reis af því að í febrúar 1999 auglýsti
utanrfkisráðherra laust til umsóknar embætti sýslumannsins á Keflavíkurflug-
velli til 5 ára frá og með 1. apríl það ár. í auglýsingunni kom fram unt hæfnis-
skilyrði að umsækjendur skyldu vera lögfræðingar og hafa fullkomið vald á
ensku auk kunnáttu í Norðurlandamálum. Því til viðbótar var greint frá því í
auglýsingunni að sýslumaðurinn hefði margs konar samskipti við yfirstjóm
vamarliðsins og kæmi fram fyrir hönd íslenska ríkisins gagnvart lögregluyfir-
völdum þess. Stefnandi í málinu, K, hafði áður kært ráðninguna til kærunefndar
jafnréttismála sent komst að eftirfarandi niðurstöðu:
Með vísan til þeirra lögmæltu hæfisskilyrða og þeirra þátta annarra sem kærði lagði
til grundvallar skipun í stöðuna, er það álit Kærunefndar jafnréttismála að kærandi
teljist að minnsta kosti jafnhæf Jóhanni R. Benediktssyni til að gegna stöðu sýslu-
manns á Keflavrkurflugvelli. Með vísan til framangreinds er það álit Kærunefndar
að utanríkisráðherra hafi við skipun í embætti sýslumanns á Keflavíkurflugvelli
brotið gegn ákvæðum 2. tl. 1. mgr. 6. gr. jafnréttislaga, sbr. 1. gr., 3. gr. og 5. gr.
sömu laga.
í málatilbúnaði stefnanda kom fram að með vísan til jafnréttislaga hefði hún
átt að fá starfið ef hún væri að minnsta kosti jafnt að því komin að því er varðaði
menntun og annað sem máli skipti. Rökstuðningur stefnanda í máli þessu var
byggður að öðru leyti eingöngu á samanburði við þann sem starfið fékk á
grundvelli menntunar og reynslu og taldi stefnandi sig a.m.k. standa honum
jafnfætis hvað þá þætti varðaði og hefði þess vegna átt að fá skipun í hið
auglýsta starf.
395