Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 100

Tímarit lögfræðinga - 01.12.2002, Side 100
gat um sérfræðingafund 24. október um Haag-samninginn sem fulltrúi EAJ tók þátt í og annan slíkan fund um gagnkvæma viðurkenningu Evrópusambands- landa á refsidómum í sakamálum sem haldinn var 3. desember í Briissel. Einnig gat hann um fyrirhugaðan fund um baráttuna gegn peningaþvætti 4. og 5. aprfl sem fulltrúi af hálfu EAJ myndi taka þátt í. Að þessu loknu fór hann yfir sambandið við Evrópuráðið (Council of Europe) og Consultative Council of European Judges (CCJE) en samþykkt hefur verið að EAJ fái að hafa áheyrnar- fulltrúa á fundum ráðsins. Til umræðu kom mál konu í Nígeríu sem hafði verið dæmd til dauða fyrir hórdóm. Hafði formanni Alþjóðasamtaka dómara (IAJ), Tarek Bennour frá Túnis, borist erindi um afskipti samtakanna af málinu en hann ákvað að gera ekkert í því þar sem málið varðaði einstakling og ekki virtist sem svo að sjálfstæði dómsvaldsins væri í húfi. Fulltrúi Króatíu á fundinum vék að baráttunni þar í landi milli dóms- og framkvæmdavalds og þá sérstaklega við dómsmálaráðherra landsins. Þakkaði hann heimsókn tveggja fulltrúa EAJ til Króatíu í mars sem héldu fund með blaða- og sjónvarpsmönnum. Þá var stutt- lega vikið að svipuðum vandamálum í Tékklandi og Moldavíu. Israelski fulltrúinn upplýsti þingið um dreifingu lögmannafélagsins þar í landi á spurningalista varðandi mat lögmanna á frammistöðu dómara. Voru svörin send nafnlaust. Þetta framtak lögmannafélagsins hafði leitt til nokkurs konar hæfnismats á dómurum sem hafði verið kynnt fjölmiðlamönnum. Höfðu nokkrir dómarar verið kynntir sem verstu dómaramir í ísrael. Eftir mikla umræðu um málið ákvað þingið að setja á fót vinnuhóp sem gerði drög að áliti sem var í framhaldinu samþykkt samhljóða af þinginu. Kemur þar nr.a. fram að dómsvaldið hafi ávallt verið meðvitað um að hegðun og frammistaða dómara veki áhuga almennings og að allir hafi rétt til þess að hafa skoðun á því. Dómarar vinni fyrir opnum tjöldum og í þágu almennings og sé það skylda þeirra að meðhöndla mál af sanngimi og jafnframt að vera skilvirkir. Þó beri að harma framtak eins og að ofan greinir sem miði að því að opinbera einstaka dómara og raða þeim í flokka eftir því hvort þeir teljist góðir, slæmir eða verstu dómaramir. Ættu lögmenn að forðast að draga úr tiltrú almennings á dóms- kerfinu. Hins vegar fagnaði EAJ allri málefnalegri gagnrýni. Ráðgert var að halda ársþing Alþjóðasamtaka dómara (International Associ- ation of Judges) í Abidjan á Fílabeinsströndinni 26. til 31. október. Þinginu var hins vegar aflýst í byrjun október vegna stríðsástands í landinu. Formaður sótti aðalfund danska dómarafélagsins sem haldinn var í Kolding 3. og 4. október. Eftir venjuleg aðalfundarstörf héldu þrír dómarar erindi um þátttöku sína í dómstörfum á erlendum vettvangi þ.á m. í Kosovo. Að loknu matarhléi var mönnum skipt niður í þrjá vinnuhópa; í þeim fyrsta var fjallað um „T-efterforskning“; í öðrum hópnum var viðfangsefnið „Sagsomkostninger“ og í þeim þriðja var rætt um „Retsmægling/mediation“. Formaður DÍ fylgdist með störfum þriðja hópsins. Fram kom að verið er að leggja síðustu hönd á tillögur um sáttadómara hjá dómsmálaráðuneytinu og Dómstólaráði. Á að prófa kerfið í bæjarþingunum í Kaupmannahöfn, Árósum og Álaborg svo og í Vestre 404
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.