Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Side 17

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Side 17
rætt að bera það með sér að um riftun í tilefni vanefndar gagnaðila sé að ræða. Er t.d. á því byggt í kpl. að fyrir fram yfirlýsing eða aðvörun nægi ekki í þessu sambandi og ekki heldur fyrirspurn sem er hlutlaus að þessu leyti. Kröfuhafi missir almennt ekki réttinn til þess að rifta samningi þótt skuldari efni skyldur sínar eftir að komið er verulega fram yfir rétt efndatímamark, sbr. 6. og 25. gr. hjúal., en kröfuhafi á hins vegar almennt svo fljótt sem verða má að tilkynna skuldara um riftunina, sbr. 29. og 39. gr. kpl. og 2. mgr. 42. gr. fast.kpl.14 Sem dæmi um tómlæti af hálfu kaupanda má nefna H 1983 1599 þar sem kaupandi kvartaði ekki sannanlega fyrr en 12. mars 1979 vegna vöru sem hon- um hafði borist í febrúarbyrjun 1978. Talið var að kvörtunin væri allt of seint fram komin og var ekki byggt á henni í niðurstöðu málsins. í 24. gr. kpl. er um það tilvik fjallað þegar seljandi beinir fyrirspum til kaup- anda um það hvort hann vilji veita söluhlut viðtöku þrátt fyrir seinkun, eða hann tilkynnir kaupanda að hann muni afhenda hið selda innan tiltekins tíma, en kaupandi svarar ekki án ástæðulauss dráttar frá því að hann fékk tilkynninguna. Getur kaupandi þá ekki rift kaupunum ef efndir verða innan þess tíma sem nefndur var. Sjá um sama efni í neyt.kpl. ákvæði 22. gr. þeirra laga. Til riftunar gagnkvæms samnings þarf yfirleitt yfirlýsingu af hálfu þess sem rifta vill.Yfirlýsing um riftun hefur bæði áhrif sem loforð og ákvöð. Sá sem yfirlýsinguna gefur fellur með henni frá rétti sínum til efnda og hann fellir jafnframt niður rétt gagnaðila til efnda. Yfirlýsingin hefur réttaráhrif þegar hún er komin til viðtakandans, sbr. 2. gr. smnl., og hún er bindandi fyrir báða aðila. Almennt eru ekki gerðar kröfur til þess að yfirlýsing um riftun sé í sérstöku formi og því er munnleg yfirlýsing jafngild og skrifleg. Hins vegar þarf yfirlýs- ingin sannanlega að hafa verið gefin og af sönnunarástæðum er heppilegra að hún sé skrifleg. 2. RIFTUN VEGNA GREIÐSLUDRÁTTAR SELJANDA 2.1 Almenn atriði - Samanburður við eldri rétt í 25. gr. kpl. er mælt fyrir um rétt kaupanda til riftunar vegna greiðsludráttar (afhendingardráttar) seljanda. Þar segir að kaupandi geti rift kaupum þegar greiðsludráttur hefur í för með sér verulegar vanefndir. Einnig er unnt að rifta kaupum ef seljandi afhendir ekki söluhlut og efndir dragast fram yfir sanngjam- an viðbótarfrest sem kaupandi hefur sett. Meðan viðbótarfrestur er að líða getur 14 Sjá nánar Bernhard Gomard: Obligationsret 2. del, bls. 92. í 6. gr. hjúal. kemur fram að húsbóndi sé ekki bundinn við vistarráð ef hjú kemur ekki af sjálfsdáðum í vistina á tilsettum tíma, og í 25. gr. laganna segir að ef hjú, án þess að sjúkleiki eða önnur lögleg forföll tálmi, eða fyrir hendi séu ástæður er heimili þvf að rifta vistarráðum, kemur ekki í vistina á ákveönum tíma svo að því er synjað viðtöku, eöa kemur alls ekki, skal það greiða skaðabætur eins og nánar er fyrir mælt í ákvæðinu. í 29. gr. kpl. segir að sé hlutur afhentur of seint geti kaupandi ekki rift kaupunum nema hann tilkynni það seljanda innan sanngjams tíma frá því að hann fékk vitneskju um afhendinguna. 227
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.