Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Side 23

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Side 23
stafað hlutnum á annan hátt án verulegs tjóns er kaupanda því aðeins heimilt að rifta kaupunum að greiðsludráttur leiði til þess að tilgangur hans með kaupun- um raskist verulega, sbr. 26. gr. kpl.27 Sambærilegt ákvæði er í 4. mgr. 23. gr. neyt.kpl. um riftun pöntunarkaupa í neytendakaupum.28 Reglur þær sem fram koma í 26. gr. kpl. styðjast við þau rök að sérsjónar- miða hljóti ávallt að gæta eðli málsins samkvæmt varðandi heimild til riftunar í pöntunarkaupum. Því verði riftunarrétturinn þar þrengri en ella myndi vera samkvæmt almennum reglum. Augljóst er að riftun af hálfu kaupanda getur í pöntunarkaupum komið mjög illa við seljandann því að hann á það á hættu að sitja uppi með hlut sem enginn annar getur notað. A hinn bóginn er ekki ástæða til þess að þrengja riftunarréttinn í slíkum kaupum umfram það sem leiðir af framangreindu sjónarmiði. Kemur því fram í ákvæðinu það viðbótarskilyrði að seljandinn geti ekki afþeim sökum, þ.e. vegna þess að um pöntunarkaup er að ræða, ráðstafað hlutnum á annan hátt án verulegs tjóns. Af orðalaginu leiðir að það er eðli pöntunarkaupanna sem veldur því að hlutnum verður ekki ráðstafað á annan hátt. Ákvæðið á því aðeins við að kaup varði hlut sem er útbúinn sérstaklega fyrir kaupanda miðað við fyrirmœli hans eða óskir. Af þessu er ljóst að ákvæðið getur ekki átt við í öllum tilvikum sem teljast til pöntunarkaupa. Um pöntunar- kaup er t.d. að ræða þegar kaupandi pantar nokkra stóla frá húsgagnaframleið- anda ef það er forsendan að verksmiðjan framleiði stólana eftir að kaup voru gerð. Ef um er að ræða stóla af tiltekinni gerð, sem verksmiðjan framleiðir einnig í öðrum tilvikum, er ekki unnt að beita 26. gr. án þess að fleira komi til. Ef stólamir eru hins vegar sérstaklega framleiddir fyrir tiltekinn kaupanda mið- að við fyrirmæli hans og óskir á greinin við. Álitamál getur verið hvort 26. gr. kpl. á við þegar kaupandinn getur valið á milli ýmissa staðalstærða eða gerða af hlutum. Dæmi um þetta eru t.d. matarkaup á veitingahúsi þar sem kaupand- inn getur valið af matseðli. Hér verður að meta það, m.a. með hliðsjón af val- möguleikum kaupandans, hvort ákvæði 26. gr. eigi við. En þar fyrir utan kemur síðara skilyrði 26. gr. einnig mjög til athugunar, þ.e. hvort seljandi geti ráðstaf- að hlutnum á annan hátt án verulegs tjóns. Regla 26. gr. kpl. gildir aðeins ef seljandi getur ekki ráðstafað hlutnum á annan hátt án verulegs tjóns. Erfiðleika seljanda við að ráðstafa hlutnum ber því að meta með hliðsjón af því að hann var útbúinn fyrir kaupanda sérstaklega samkvæmt fyrirmælum hans og óskum. Möguleikar seljanda að ráðstafa hlutn- um eru að mörgu leyti undir því komnir að hve miklu leyti hann er útbúinn sér- staklega fyrir kaupandann, svo sem áður sagði. Tegund hlutarins og umsvif við- skipta á markaðinum með slíka hluti skipta einnig máli. Sem dæmi um þetta má 27 Ákvæði þetta á sér hvorki hliðstæðu í eldri kaupalögum né í Sþ-sáttmálanum og gildir því ekki í alþjóðlegum kaupum eins og sérstaklega er tekið fram í niðurlagi þess. I alþjóðlegum kaupum gilda hins vegar venjuleg riftunarskilyrði, sbr. 25. gr. laganna. Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 86 28 Alþt. 2002-2003, þskj. 904, bls. 45-46. 233
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.