Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Qupperneq 24

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Qupperneq 24
nefna að hafi gestur á veitingahúsi pantað nautasteik, en vilji hana síðan ekki af því að framreiðslan tekur of langan tíma, má vera að hægt sé að bjóða steikina einhverjum öðrum, en sá möguleiki er að sjálfsögðu að verulegu leyti háður því hversu margir aðrir gestir eru á staðnum sem ekki hafa fengið afgreiðslu. Einnig má nefna kaup á gleraugum. Lítill vandi er að setja annað gler í umgjörð en aftur á móti er glerið sjálft mjög oft sérstaklega hannað fyrir kaupandann. Af þeim sökum hefur seljandinn aðeins mjög takmarkaða möguleika á að ráðstafa því. Annað sérstakt skilyrði riftunar af hálfu kaupanda í pöntunarkaupum er að tilgangur hans með kaupunum raskist verulega vegna greiðsludráttarins. Það nægir því ekki að greiðsludráttur sé verulegur eða valdi kostnaði og óþægind- um ef því skilyrði er engu síður ekki fullnægt að tilgangur kaupanna raskist verulega. Akvæði greinarinnar eiga þá fyrst við þegar gerð hlutar hefur hafist að marki eða seljandinn hefur gert svipaðar ráðstafanir til undirbúnings efndum. Ef selj- andinn hefur á hinn bóginn hvorki lagt í umtalsverða vinnu né kostnað, sem ónýtist við riftun, er ekki ástæða til þess að takmarka riftunarrétt kaupanda. Þótt ekki leiði þetta beinlínis af orðalaginu er til þessara atriða að líta við beitingu ákvæðisins. 2.7 Hlutur afhentur of seint - Frestur kaupanda til að krefjast riftunar Ef hlutur er afhentur of seint getur kaupandi ekki rift kaupum nema hann tilkynni það seljanda innan sanngjams tíma frá því að hann fékk vitneskju um afhendinguna, sbr. 29. gr. kpl.29 Sambærilegt ákvæði er í 2. málsl. 1. mgr. 23. gr. neyt.kpl. Segja má að regla 29. gr. kpl. sé ekki eins ströng og regla eldri laga því að kaupand- inn þarf ekki að senda hlutlausa tilkynningu vegna greiðsludráttar (um galla gilda aðrar tilkynningarreglur, sbr. 32. gr. laganna). Við setningu nýrra kpl. þótti ekki ástæða til þess að krefjast sérstakrar tilkynningar vegna kröfu um skaðabætur þegar söluhlutur er afhentur of seint. Seljandanum er í flestum tilvikum ljós greiðsludráttur og hann getur því alltaf búist við skaðabótakröfum af því tilefni. Riftun er á hinn bóginn svo afdrifaríkt úrræði að ekki er óeðlilegt að krefjast þess að kaupandinn skýri frá því innan sanngjams tíma ef hann ætlar að neyta þess úrræðis. Þá verður einnig að hafa í huga að tilkynningarfresturinn er ekki eins strangur og þegar um hlutlausa tilkynningu er að ræða samkvæmt eldra rétti. 29 Ákvæðið svarar til a-liðar 2. mgr. 49. gr. Sþ-sáttmálans. í 27. gr. eldri kaupalaga kom fram sú regla að kaupandi varð að skýra frá því að hann ætlaði að bera fyrir sig greiðsludrátt (hlutlaus tilkynning), ef í ljós kom að söluhlutur hafði verið afhentur of seint. I verslunarkaupum varð að tilkynna slíkt þegar í stað en ella án ástæðulauss dráttar. Ætlaði kaupandinn að rifta kaupum varð hann að skýra sérstaklega frá því án óþarfrar tafar, ella missti hann þann rétt. Á hinn bóginn var ekki þörf sérstakrar tilkynningar þegar um aðrar kröfur var að ræða. 234
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.