Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Page 31

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Page 31
Skilyrði fyrir beitingu 1. mgr. 37. gr. eru þau að úrbætur eða afhending að nýju hafi ekki komið til álita eða ekki hafi orðið af þeim innan hæfilegs tíma. Urræðin hafa í fyrsta lagi ekki komið til álita ef hvorki eru fyrir hendi skilyrði 34. eða 36. gr., og í öðru lagi á hið sama við ef hvorki kaupandi né seljandi óska eftir því að beita þessum réttindum sínum. Síðara skilyrðið, að ekki hafi orðið q/'úrbótum eða afliendingu að nýju innan hæfilegs tíma, tekur einkum til þeirra tilvika þar sem kaupandi hefur krafist úrbóta eða afhendingar að nýju, en seljandi gerir annaðhvort misheppnaða tilraun til að fullnægja kröfunni eða alls ekki neitt. í ákvæðinu kemur einnig fram að kaupandi þarf ekki að bíða von úr viti eftir úrbótum eða afhendingu að nýju heldur aðeins í hæfilegan tíma. Hvað telst hœfilegur tími verður að meta með hliðsjón af því hvers konar kaup var um að ræða og tegund gallanna. Seljandi hefur samkvæmt þessu vissan tíma til að undirbúa og framkvæma úrbætur eða afhendingu að nýju. Það leiðir enn fremur af þessu að kaupandi getur krafist afsláttar eða rift kaupunum, jafnvel þótt fyrir liggi að bæta eigi úr göllum á söluhlut eða afhenda annan hlut, ef það tekur of langan tíma samkvæmt þeirri viðmiðun sem fram kemur í ákvæðinu. Afleiðing þess að ekki er bætt úr eða annar hlutur afhentur, þegar skilyrði greinarinnar eru fyrir hendi, er sú að kaupandi getur krafist afsláttar eða rift kaupunum. Eins og áður segir er það þó forsenda að skilyrðum 38. eða 39. gr. sé fullnægt. Þetta þýðir að skilyrði afsláttar eru oftast fyrir hendi þar sem unnt er að krefjast hans á hlutlægum forsendum. Þó verður að gera þann fyrirvara að gallinn hafi í raun valdið verðrýmun hlutarins. Ef um er að ræða riftun eru aðstæður nokkuð öðruvísi því að skilyrði riftunar eru þau að gallinn sé veru- •egur. Hafi kaupandi krafist úrbóta vegna smávægilegra galla, eins og oft er raunin, er ekki unnt að krefjast riftunar þó að seljandinn sinni ekki slíkri kröfu. Hins vegar getur verið að endurteknar viðgerðir á söluhlut, sem ekki bera árangur, geti í raun bent til þess að galli sé ekki svo óverulegur sem seljandi vill vera láta. Svo sem áður er getið getur kaupandi ávallt krafist skaðabóta að svo miklu leyti sem tjón hans er ekki að fullu bætt með afslættinum, að því tilskildu að skilyrðum 40. gr. sé fullnægt. í því tilviki getur kaupandi einnig krafist skaðabóta vegna útgjalda sem hann hefur orðið fyrir vegna árangurslausra til- rauna við að fá úrbætur eða aðra hluti afhenta. Samkvæmt síðari málslið 1. mgr. 37. gr. á fyrri málsliður ekki við ef kaup- andi hefur hafnað úrhótum sem hann var skyldur til að þiggja. Skilyrði fyrir þessu eru þau að seljandi hafi óskað eftir því að fá að laga söluhlut, og að skilyrðum 36. gr. hafi að öðru leyti verið fullnægt. Ef kaupandi neitar beiðni seljanda þrátt fyrir þetta getur hann hvorki rift kaupum né krafist afsláttar, jafn- vel þótt skilyrðunt 38. eða 39. gr. hafi verið fullnægt. Þessi takmörkun kann að virðast ósanngjöm, en á hinn bóginn er augljóst að séu skilyrði 36. gr. fyrir hendi hefur kaupandi möguleika á því að fá ógallaðan hlut en þeim möguleika hefur hann hins vegar hafnað. Við þær aðstæður er ekki eðlilegt að hann haldi fétti sínum til að krefjast afsláttar eða riftunar. Hér ber þó að taka fram að kaup- andi missir ekki rétt sinn til skaðabóta þótt hann hafni úrbótum eða afhendingu 241
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.