Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Qupperneq 36
að riftunarréttur skapist, getur kaupandi á þeim grundvelli einnig rift að því er
síðari afhendingar varðar ef það gerist áður en sanngjam frestur er liðinn (2.
mgr.). Ef kaupandi riftir kaupum að því er eina afhendingu varðar getur hann
samtímis rift kaupunum varðandi fyrri eða síðari afhendingar ef slíkt samhengi
er milli þeirra að þær nýtist ekki í þeim tilgangi sem gert var ráð fyrir við
samningsgerðina (3. mgr.).52 I 1.-3. mgr. 58. gr. neyt.kpl. eru sambærileg
ákvæði um riftunarrétt neytanda við afhendingu í áföngum.
Regla 44. gr. kpl. gildir um riftun við hvers konar vanefnd varðandi afhend-
ingu í áföngum. Hún á við þegar samið er um afhendingar í áföngum hvort sem
þar er um heimild eða skyldu að ræða. Oljóst er hvort og í hvaða mæli kaupandi
getur valið milli þess að beita ákvæðum 43. og 44. gr. Beiting ákvæðis 44. gr.
kemur einkum til álita þegar um tiltölulega skýr ákvæði er að ræða varðandi
afhendingu í áföngum.53 Með sama hætti er óljóst í neytendakaupum í hvaða
mæli neytandi getur valið milli þess að beita ákvæðum 57. og 58. gr. neyt.kpl.,
en beiting 58. gr. kemur helst til álita þegar um tiltölulega skýr ákvæði er að
ræða um afhendingu í áföngum.54
4.2 Riftun þeirrar afhendingar sem vanefnd varðar
Þegar afhenda á hið selda í áföngum ber samkvæmt 1. mgr. 44. gr. að líta á
einstakar afhendingar sem sjálfstæð kaup með hliðsjón af riftunarreglum. Hver
einstök afhending er því skoðuð sem sjálfstæð kaup að þessu leyti. Kaupandi
getur rift að því er tekur til þeirrar afhendingar sem vanefnd varðar ef almenn
riftunarskilyrði eru fyrir hendi, m.a. það skilyrði að vanefnd sé veruleg. Skil-
yrðið um verulega vanefnd verður að meta með hliðsjón af viðkomandi afhend-
ingu en ekki með hliðsjón af kaupunum í heild. Akvæðið rýmkar því rétt kaup-
anda til riftunar miðað við það sem vera myndi ef litið væri á kaupin sem eina
heild. Á hinn bóginn getur kaupandi ekki rift að því er varðar þær afhendingar
sem eru í samræmi við samning. Ákvæðið á einkum við þegar unnt er að nota
þá hluta, sem afhentir eru, hvem fyrir sig og án tillits til annarra, t.d. olíu eða
annað hráefni. Ákvæðið á hins vegar síður við þegar afhentir hlutar eru í raun-
verulegum og starfslegum tengslum við aðra hluta, t.d. vélbúnaður.55 Sömu
sjónarmið eiga við um skýringu á 1. mgr. 58. gr. neyt.kpl.56
4.3 Riftun varðandi síðari afhendingar
Kaupandi hefur með vissum skilyrðum rétt til þess að rifta að því er varðar
síðari afhendingar, sbr. 2. mgr. 44. gr. kpl.
52 Ákvæðið svarar til 73. gr. Sþ-sáttmálans. í eldri lögum var sambærileg ákvæði að finna f 22. gr.
(greiðsludráttur) og 46. gr. (galli). Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 120.
53 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 120.
54 Alþt. 2002-2003, þskj. 904, bls. 77-78.
55 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 120-121.
56 Alþt. 2002-2003, þskj. 904, bls. 78.
246