Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Side 37

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Side 37
Slíkur riftunarréttur sem um ræðir í ákvæðinu gæti einnig byggst á ákvæð- um 62. gr., þ.e. riftun vegna fyrirsjáanlegra vanefnda. Akvæði þetta gerir hins vegar ráð fyrir því, gagnstætt ákvæðum 62. gr., að vanefnd hafi þegar orðið að því er varðar hluta greiðslunnar. Þegar þau skilyrði eru fyrir hendi fær kaupandi nokkuð rýmri riftunarrétt en leiða mundi af ákvæðum 62. gr. Kemur þetta fram í orðalagi ákvæðanna. Þannig er í 62. gr. sagt: Ef Ijóst er fyrir efndatíma að koma muni til vanefnda, en í 2. mgr. 44. gr. segir hins vegar: Efvanefndir veita kaupanda réttmæta ástœðu til að ætla að vanefndir verði á afhendingum síðar. I síðari tilvitnuninni (2. mgr. 44. gr.) felst að líkumar fyrir vanefnd í framtíðinni eru miðaðar við að vanefnd hafi þegar orðið að því er varðar hluta afhendingar. Þar að auki er það eitt ekki nægjanlegt að ástæða sé til að ætla að vanefnd verði heldur verður vanefndin að vera þess eðlis að hún muni veita rétt til riftunar. Það er hins vegar ekki skilyrði að hin fyrirsjáanlega vanefnd sé sömu tegundar og sú fyrri. Ef verulegur galli við fyrstu afhendingu veitir réttmæta ástæðu til að ætla að verulegur greiðsludráttur verði á þeirri næstu er unnt að rifta að því er báðar afhendingamar varðar. Ekki er það skilyrði riftunar skv. 2. mgr. 44. gr. kpl. að kaupandi hafi beitt riftunarrétti að því er tiltekna afhendingu varðar. Sem dæmi um þetta má nefna kaup þar sem seljandinn á að greiða með fimm afhendingum. Ef verulegur greiðsludráttur verður varðandi aðra sendinguna má vera að kaupandinn líti svo á að þrátt fyrir allt sé best fyrir hann að krefjast efnda. Verði eftir þetta seinkun á þriðju afliendingu getur verið að kaupandinn sjái hagsmunum sínum best borgið með því að rifta kaupunum að því er varðar fjórðu og fimmtu sending- una, hvort heldur hann velur að rifta varðandi þriðju sendinguna eða ekki. Það er skilyrði riftunar, að því er varðar síðari afhendingar, að það gerist áður en sanngjam tími er liðinn frá því sú vanefnd varð sem veitti rétt til riftun- ar. Ef vanefnd verður við hverja afhendinguna eftir aðra byrjar nýr frestur að líða við hverja vanefnd fyrir sig.57 Sambærilegt ákvæði er í 2. mgr. 58. gr. neyt.kpl. Það veitir neytanda með vissum skilyrðum rétt til riftunar að því er varðar síðari afhendingar. Slíkur riftunarréttur gæti einnig byggst á ákvæðum 62. gr. kaupalaga, sbr. 55. gr., þ.e. riftun vegna fyrir- sjáanlegra vanefnda. Ákvæði 2. mgr. 58. gr. neyt.kpl. gerir hins vegar ráð fyrir því, gagnstætt ákvæðum 62. gr. kpl., að vanefnd hafi þegar orðið að því er varðar hluta greiðslunnar. Þegar þau skilyrði eru fyrir hendi fær neytandi nokkuð rýmri riftunar- rétt en leiða myndi af ákvæðum 62. gr. kpl.58 4.4 Riftun varðandi bæði fyrri og síðari afhendingar Kaupandi á samkvæmt 3. mgr. 44. gr. kpl. rétt til að rifta kaupum, bæði að því er varðar fyrri og síðar afhendingar, þegar um er að ræða ákveðið samhengi 57 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 121. 58 Um skýringar á 2. mgr. 58. gr. neyt.kpl. sjá Alþt. 2002-2003, þskj. 904, bls. 78. 247
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.