Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Síða 46
skyldu sína, sbr. 54. gr., heldur einnig þegar hann hefur vanefnt aðrar skyldur í
sambandi við kaupin, sbr. 55. gr., sbr. einnig 50. gr. og 1. mgr. 51. gr. laganna.82
í 59. gr. neyt.kpl. er ákvæði sem svarar til 56. gr. kpl. og fjallar um riftunarrétt selj-
anda við afhendingu í áföngum. Akvæðið á ekki aðeins við um greiðsluvanefndir
neytanda heldur einnig vanefndir á skyldunni til að stuðla að efndum. Þau réttindi
sem seljandinn hefur samkvæmt 59. gr. eru mjög hliðstæð réttindum neytanda sam-
kvæmt 58. gr. Greinin á við um riftun vegna allra vanefnda neytanda við áfanga-
skyldur hans. Um vanefndir er því ekki aðeins að ræða þegar neytandi vanrækir
greiðsluskyldu sína, heldur einnig þegar hann hefur vanefnt aðrar skyldur sínar í
sambandi við kaupin.83
5.8.2 Riftun varðandi eina afhendingu
I 1. mgr. 56. gr. kpl. er fjallað um það tilvik þegar seljandinn á að afhenda
hið selda í áföngum og efndir af hálfu kaupanda haldast í hendur við afhend-
ingu seljanda. I ákvæðinu felst hið sama og í 1. mgr. 44. gr., þ.e. litið er á hverja
afhendingu sem sjálfstæð kaup að því er riftunarréttinn varðar. Seljandinn getur
við vanefndir rift kaupum að því er hverja einstaka aflrendingu varðar, og
skilyrði þessa eru metin út frá viðkomandi afhendingu. Tilvísun 1. mgr. 56. gr.
til 54. gr. laganna felur það m.a. í sér að vanefndir þær sem hér um ræðir verða
að vera verulegar eða að viðbótarfresti hafi ekki verið sinnt. Enn fremur felst í
tilvísuninni að riftun kann að taka til afhendinga sem kaupandi hefur þegar veitt
viðtöku, sbr. 4. mgr. 54. gr. Loks eiga ákvæði 59. gr. við um riftunarfresti.84
Sömu sjónarmið og hér voru rakin eiga við um skýringu á 1. mgr. 59. gr. neyt.kpl.
Tilvísun til 45. gr. þeirra laga felur það m.a. í sér að vanefndir þær sem hér um ræðir
verða að vera verulegar eða að viðbótarfresti hafi ekki verið sinnt. Ennfremur felst í
tilvísuninni að riftun kann að taka til afhendinga sem neytandi hefur þegar veitt
viðtöku.85
5.8.3 Riftun varðandi síðari afhendingar
Ákvæði 2. mgr. 56. gr. kpl. heimila seljanda rétt til riftunar að því er síðari
afhendingar varðar með sömu skilyrðum og fram koma í 2. mgr. 44. gr. varð-
andi riftunarheimild kaupanda. Olíkt því sem gildir um riftun skv. 62. gr. er það
skilyrði að þegar séu til staðar vanefndir varðandi eina einstaka afhendingu.
Vanefndir verða að vera slíkar, þ.e. þess eðlis og með þeim hætti, að þær veiti
réttmæta ástœðu til að ætla að riftunarréttur skapist að því er síðari afhendingar
82 Lagagreinin svarar til 73. gr. Sþ-sáttmálans. Ákvæði 29. gr. laga nr. 39/1922 er sambærilegt við
2. mgr., en í eldri lögum var hins vegar ekki regla sambærileg 1. mgr. Alþt. 1999-2000, þskj. 119,
bls. 133.
83 Alþt. 2002-2003, þskj. 904, bls. 78.
84 Alþt. 1999-2000, þskj. 119, bls. 133-134.
85 Alþt. 2002-2003, þskj. 904, bls. 79.
256