Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Síða 79
aðgerðimar em ekki friðsamlegar.57 Sama á við um aðgerðir þar sem ekki er um
eiginlega vinnustöðvun að ræða, svo sem þegar starfsmenn tefja vinnu með því
að fara nákvæmlega eftir öllum reglum og þegar starfsmenn fara sér hægt við
vinnu.
Að því er snertir markmið verkfalla hafa eftirlitsaðilar ILO lagt til grundvall-
ar að launafólki sé heimilt að grípa til verkfalla í þeim tilgangi að vemda efna-
hagslega og félagslega hagsmuni sína.58 Efnahagslegir og félagslegir hagsmun-
ir sem starfsmenn verja með því að neyta verkfallsréttar síns eiga ekki aðeins
við um betri vinnuaðstæður heldur einnig þegar leitað er leiða til að leysa efna-
hagsleg og félagsleg atriði svo sem vandkvæði sem steðja að fyrirtækinu sem
hafa beina þýðingu fyrir starfsmennina.59 Hrein pólitísk verkföll njóta ekki
vemdar samkvæmt samþykktunum, en gagnstætt FSE vemda þær þó aðgerðir
svo sem mótmælaverkföll í því skyni að gagnrýna efnahagslega eða félagslega
stefnu ríkisstjómar.60
2.6.3 Undantekningar frá meginreglunni um frjálsan verkfallsrétt
í niðurstöðum sínum hefur félagafrelsisnefnd ILO gengið út frá því að verk-
fallsrétturinn sé ein af grundvallarforsendum þess að réttur samtaka launafólks
til að skipuleggja starfsemi sína verði tryggður með virkum hætti, sbr. 3. gr.
samþykktar nr. 87.61 Nefndin hefur þannig gengið út frá þeirri meginreglu að
verkföll séu heimil og aðeins leyft þröngar undantekningar frá henni. Sam-
kvæmt niðurstöðum félagafrelsisnefndarinnar er almennt aðeins heimilt að tak-
marka verkfallsréttinn við tvennskonar aðstæður. Annars vegar þegar um er að
ræða opinbera starfsmenn og hins vegar að því er snertir nauðsynlegar þjón-
ustugreinar (essential services). Þegar þessu sleppir er aðeins heimilt að tak-
marka verkfallsréttinn þegar sérstaklega þröng skilyrði em uppfyllt, þ.e. þegar
brýnt neyðarástand (acute national crisis) er fyrir hendi í hlutaðeigandi ríki.
Samkvæmt niðurstöðum sérfræðinganefndarinnar er þvinguð gerðardómsmeð-
ferð aðeins heimil í sömu tilvikum og getið er hér að framan. Frekari kröfur eru
einnig gerðar til gerðardómsmeðferðar, svo sem að gerðardómar séu óháðir og
að niðurstöður þeirra séu ekki bundnar fyrir fram með löggjöf, sbr. t.d. mál nr.
1768, Alþýðusamband Islands gegn Islandi vegna lagasetningar á verkföll starfs-
57 Sjá Bernard Gernigon, Alberto Odero og Horacio Guido: „ILO principles concerning the
right to strike“, bls. 458.
58 Freedom of Association - Digest of decisions and principles of the Freedom of Association
Committee of the Goveming Body of the ILO, bls. 101-103.
59 Sama rit, bls. 102.
60 Sama rit, bls. 102.
61 Sjá Bernard Gernigon, Alberto Odero og Horacio Guido: „ILO principles conceming the
right to strike“, bls. 448.
289