Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Síða 90

Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Síða 90
flokka við mat á því hvaða sáttmálar komi til álita við skýringu félagafrelsis- ákvæðis 1. mgr. 74. gr. stjómarskrárinnar. Önnur sjónarmið koma hins vegar til skoðunar varðandi það efni eins og nánar verður vikið að hér á eftir. 4.5 Tengsl 11. gr. MSE og 1. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar Við mat á því hvort og þá hvaða reglur alþjóðlegra mannréttindasáttmála sem Island hefur skuldbundið sig til að fylgja koma til álita við túlkun á einstökum mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar koma ýmis sjónarmið til álita. Verður að ætla, þegar orðalagi stjórnarskrárákvæðanna sleppir, að þar vegi þungt mark- mið stjómarskrárgjafans sem fram koma í lögskýringargögnum með frumvarpi til stjómarskipunarlaga nr. 97/1995, sbr. t.d. dóm Hæstaréttar í framangreindu öryrkjamáli. Einnig að hvaða marki hlutaðeigandi stjómarskrárákvæði eigi sér samsvöran í því ákvæði mannréttindasáttmála sem til álita kemur að beita.91 Þá skiptir máli hvort hlutaðeigandi mannréttindaákvæði felur í sér réttindi sem með tilliti til framsetningar ákvæðisins er unnt að líta á sem lagaleg.92 Að því er snertir tengsl 1. mgr. 74. gr. og 11. gr. MSE er í dómi Hæstaréttar í sjómannamálinu vísað til þess að við endurskoðun mannréttindaákvæða stjómarskrárinnar árið 1995 hafi stjómarskrárgjafinn sérstaklega haft í huga ákvæði MSE. Fram komi í greinargerð með frumvarpinu að fyrirmynd 74. gr. stjómarskrárinnar sé sótt til 11. gr. MSE. I því sambandi má benda á að ákvæði það sem nú er í 1. mgr. 74. gr. stjómarskrárinnar, um rétt til að stofna félög, hefur að stofni til staðið óbreytt frá 1874 og var aðeins breytt lítillega árið 1995. Ekki er sérstaklega vísað til MSE um þær breytingar í greinargerð með fram- varpi til stjómarskipunarlaga nr. 97/1995 en tekið fram að þær beinist „flestar aðeins að orðalagi“. I meðförum Alþingis var bætt við ákvæðið tilvísun til stjómmálafélaga og stéttarfélaga og kemur fram í nefndaráliti stjómarskipun- amefndar að það hafi verið gert „í ljósi þess að hér er um að ræða einhverja mikilvægustu flokka félaga í sérhverju lýðræðisríki“.93 Kom fram í ræðu flutn- ingsmanns frumvarps til stjómarskipunarlaga, er það var lagt öðra sinni fram Alþingi, að þessar breytingar hefðu verið gerðar vegna þess að um það hafi komið fram óskir við meðferð frumvarpsins.94 Verður því ekki séð að tilvísun þessi til stéttarfélaga hafi verið sótt til ákvæðis 11. gr. MSE. Á hinn bóginn er í athugasemdum við frumvarpið vísað til 11. gr. MSE til rökstuðnings fyrir ákvæði 2. mgr. 74. gr. um rétt til að standa utan félaga, m.a. með vísan til þess að samkvæmt dómaframkvæmd MDE felist slíkur réttur í ákvæðinu.95 Þannig virðist sú hliðsjón sem höfð var af ákvæði 11. gr. MSE við breytingar á 74. gr. 91 Sjá álit umboðsmanns Alþingis frá 12. apríl 2002 í máli nr. 3204/2001. 92 Sjá Martin Scheinin: „Economic and Social Rights as Legal Rights“, bls. 42 og Björg Thor- arensen: „Beiting ákvæða um efnahagsleg og félagsleg mannréttindi í stjómarskrá og alþjóðasamn- ingum“, bls. 86. 93 Alþt. 1994-95, A-deild, bls. 3886. 94 Alþt. 1995, B-deild, dk. 140. 95 Alþt. 1994-95, A-deild, bls. 2107. 300
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.