Tímarit lögfræðinga - 01.11.2003, Blaðsíða 107
3.4 Bann laga nr. 34/200124
Þegar lögin nr. 34/2001 voru sett hafði verkfall sjómanna staðið í um 6 vikur.
Með lögunum var verkfallið bannað og ákveðið að kjör sjómanna skyldu af-
ráðin með ákvörðun stjómsýslunefndar, sem skyldi skipuð af Hæstarétti, ef
aðilamir næðu ekki saman um niðurstöðu í kjaramálum sínum innan skamms
tíma frá lagasetningunni. í sjómannamálinu var byggt á því af hálfu alþýðusam-
bandsins að lögin væru ólögmætt inngrip í starfsemi frjálsra, löglegra félaga.
Sambandið taldi að löggjafanum væri almennt óheimilt að skerða samnings-
frelsi og verkfallsrétt og að 74. gr. stjómarskrárinnar vemdaði ekki aðeins frelsi
til aðildar að stéttarfélögum heldur einnig frjálsa starfsemi félaganna. Mikil-
vægasta hlutverk félaganna væri að gera kjarasamninga og vemd 74. grein-
arinnar næði ekki aðeins til frelsis félaganna til að gera kjarasamninga heldur
einnig réttarins til að gera verkfall.
I sjómánnamálinu var á því byggt af hálfu íslenska ríkisins að verkföll og
verkbönn sjómanna og útvegsmanna væru farin að skaða íslenskt efnahagslíf
svo mjög að ekki yrði við unað. Gríðarlegir almannahagsmunir væru í húfi og
litlar líkur til að samningsaðilar semdu um kjaramál sín. I því sambandi var til
þess vísað að reynsla liðinna ára af kjaradeilum útvegsmanna og sjómanna væri
ekki sérstaklega vel til þess fallin að skapa traust á möguleikum þeirra til þess
að ná saman um sín mál.
3.5 Dómsniðurstaða í sjómannamálinu
í niðurstöðu héraðsdóms, sem staðfest var af Hæstarétti með vísan til for-
sendna, var fallist á að túlka bæri félagafrelsisákvæði 74. gr. stjómarskrárinnar
með hliðsjón af 1. og 2. mgr. 11. gr. mannréttindasáttmálans. Ákvæði 74. gr.
stjómarskrár var ekki talið veita félagafrelsinu minni vemd en 11. gr. sáttmálans
gerir ráð fyrir. Með vísan til viðtekinnar túlkunar á 1. og 2. mgr. 11 gr. var talið
að túlka yrði 1. mgr. 74. gr. stjómarskrárinnar svo að ákvæðið vemdi ekki ein-
ungis réttinn til að stofna stéttarfélög heldur vemdi það einnig frelsi stéttar-
félaga til að standa vörð um og að tryggja hagsmuni félagsmanna sinna. Samn-
ingsfrelsi félaganna var talin leið að slíku marki og því talið njóta sérstakrar
vemdar. Þá segir í dóminum að líta verði svo á að verkfallsrétturinn sé í þeim
skilningi hluti af samningsfrelsi þeirra þegar litið sé til þess eðlis hans að hann
sé lögbundin leið til að knýja gagnaðila til að ganga til samninga. Hins vegar
var 1. mgr. 74. gr. stjómarskrárinnar ekki talin fela í sér skilyrðislausa vernd
verkfallsréttar en að líta yrði svo á að samningsfrelsi verkalýðsfélaga og beit-
24 1. gr. Verkföll Sjómannafélags Eyjafjarðar og aðildarfélaga Farmanna- og fiskimannasambands
íslands, auk verkbanna aðildarfélaga Landssambands íslenskra útvegsmanna gagnvart aðildarfé-
lögum í Alþýðusambandi Vestfjarða og aðildarfélögum Sjómannasambands íslands, svo og verk-
föll og verkbönn og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan kjaramála en lög þessi
ákveða, eru óheimil frá gildistöku laganna og á gildistíma ákvarðana gerðardóms skv. 2. og 3. gr.
Þó er aðilum heimilt að semja um slíkar breytingar en eigi má knýja þær fram með vinnustöðvun.
317