Árbók Háskóla Íslands - 01.04.1967, Side 141
139
veitingar til félagsstarfsemi meðal stúdenta. Gert er ráð fyrir, að
stúdentar greiði árlegt gjald til stofnunarinnar og einnig muni há-
skólaráð og ríkisvaldið leggja fram fé til reksturs stofnunarinnar.
Gera má ráð fyrir, að stofnunin taki til starfa í fyrsta lagi á
árinu 1968.
Á fundi sínum í febrúar samþykkti Stúdentaráð efnislega frum-
drög að lögum og reglugerð fyrir stofnunina og fól formanni ráðs-
ins og formanni hagsmunanefndar að eiga viðræður við háskóla-
rektor, vararektor og háskólaritara um frekari og nánari útfærslu
tillagnanna.
Formaður hagsmunanefndar var Valur Valsson, stud. oecon.
Frá menntamálanefnd S.H.Í.
Þess ber að geta í upphafi, að menntamálanefnd er tilraunastarf-
semi, sem ekki á sér neina fyrirmynd að heitið getuy í starfsemi
S.H.Í. Samin var reglugerð fyrir menntamálanefnd strax í byrjun
starfstíma Stúdentaráðs, en ekki er ólíklegt, að sú reglugerð muni
breytast nokkuð eftir því sem reynsla fæst á einstökum liðum
hennar.
Síðast á árinu var hafinn undirbúningur að mikilli skoðana- og
hátterniskönnun, sem átti að leiða í ljós námsaðstöðu stúdenta við
Háskóla íslands, og svo afstöðu þeirra til náms síns og starfs að
því loknu. Ekki varð þó neitt úr framkvæmdum að sinni, og liggja
til þess ýmsar ástæður, sem ekki er unnt að telja upp.
Menntamálanefnd sá um nýja útgáfu stúdentahandbókar á starfs-
tímabilinu. Átti hún samvinnu við S.Í.S.E. um málið. Tvær deildir
Háskóla íslands, heimspekideild og viðskiptadeild, hafa tekið all-
róttækum stakkaskiptum á síðari árum, og sýndu prófessoramir
Halldór Halldórsson og Árni Vilhjálmsson S.H.Í. þá vinsemd að semja
ítarlega kafla um fyrirkomulag deildanna í hina nýju stúdenta-
handbók. Nefndin færir þeim sínar beztu þakkir fyrir. Mikill og lofs-
verður áhugi viðkomandi aðila á að bæta og efla Háskóla Islands
sem mest hefur á síðustu árum komið miklu til leiðar. Því taka
einstöku deildir miklum breytingum og eru þar hvergi nærri öll kurl
komin til grafar. Þykir því sýnt, að stúdentahandbækur gangi fljótt
úr sér, og var nú þar af leiðandi reynt að hafa útgáfu bókarinnar
eins ódýra og frekast leyfði.
Samkvæmt samþykkt S.H.Í. er það nú einnig í verkahring mennta-
málanefndar að gefa út Vettvang. Er ritið nú orðið að mánaðarriti
°g skal menntamálanefnd vera ábyrg fyrir útkomu þess.