Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1991, Page 19
Ræður rektors Háskóla íslands
17
Brautskráning kandídata 3. mars 1990
Kœru kandídatar, góðir gestir og ágœtu sam-
starfsmenn.
Eg býð ykkur hjartanlega velkomin til þess-
arar hátíðar þegar við afhendum kandídötum
prófskírteini og staðfestum formlega að há-
skólaprófi er lokið.
Við óskum ykkur, kæru kandídatar, og fjöl-
skyldum ykkar til hamingju með þennan
mikilvæga áfanga og við þökkum ykkur sam-
starfið á liðnum árum. Sum ykkar munu halda
áfram námi við aðra háskóla en önnur halda út
á vinnumarkaðinn til þátttöku í atvinnulífi
þjóðarinnar, sem vissulega þarf að verða
fjölbreyttara.
I skólastarfi því sem þið hafið kynnst til
þessa hefur frammistaða ykkar verið metin af
kennurum ykkar. Þið hafið fengið einkunnir
fyrir kunnáttu og fæmi ýmisskonar. Háskóli
Islands hefur tekið upp þá nýbreytni að biðja
nemendur að leggja mat á þau námskeið sem
þeir taka þátt í, að meta ýmsa þætti þeirrar
þjónustu sem þeir hafa fengið hjá kennurum
sínum. Þetta námskeiðamat hefur verið undir-
búið af kennslumálanefnd háskólaráðs á und-
anfömum árum að frumkvæði stjórnenda
Háskólans og mun það verða endurbætt eftir
þvf sem reynslan gefur tilefni til. Stúdentar
sýndu málinu mikinn áhuga eins og vænta
mátti og annast þeir könnunina, en úrvinnsla
gagna er í höndum kennslumálanefndar.
Með slíku námskeiðamati gefa nemendur
kennurum sínum einkunn og einnig viður-
kenningu fyrir frammistöðuna. Tilgangurinn
með slíku mati er að veita kennaranum leið-
beiningar og upplýsingar um árangur erfiðis-
■ns, hversu vel hann kemur efninu frá sér,
hversu vel hann örvar nemendur til sjálfsnáms
°g gagnrýninnar hugsunar. Eftir sem áður er
það nemandinn sem verður að nema og til-
einka sér þá þekkingu og fæmi sem krafist er.
Hann verður að leggja fram tíma, athygli og
einbeitingu, því án ástundunar nemandans
verður viðleitni og vinna kennarans árangurs-
lítil.
Vert er að hafa í huga að niðurstöður slíkra
námskeiðakannana gefa upplýsingar sem meta
verður með varúð. Reynsla erlendra háskóla er
sú að slíkt mat er einkum erfitt á fyrsta náms-
ári í háskóla, því nemendur sem standa sig vel
í námi gefa kennurum gjaman betri einkunnir
en nemendur sem standa sig illa. Niðurstöður
námskeiðamatsins nú f lok haustmisseris lofa
góðu og benda til að markmið þess muni nást.
Mat kandídata á gæðum kennslunnar breyt-
ist einnig með tímanum að námi loknu. Slík
viðhorf vom könnuð í Bandaríkjunum af próf-
essor Cyril Houle við Chicago-háskóla. Hefi
ég áður minnst á þessar athuganir hér, en nið-
urstöðurnar voru þær sömu hver sem háskól-
inn var eða fræðigreinin.
Á fyrstu fimm árum eftir að námi lauk
kvörtuðu kandídatar undan því að námið hefði
átt að vera hagnýtara, betri undirbúningur
undir starfið. Tíu árum eftir brautskráningu
var umkvörtunin sú að þeir hefðu átt að læra
meira í undirstöðugreinum. Fimmtán árum
eftir námslok töldu kandídatamir að þeir hefðu
átt að læra meira um stjómun og mannleg
samskipti. Nú voru þeir komnir í stjómunar-
stöður. Tuttugu ámm eftir að námi lauk ásök-
uðu kandídatar kennara sfna fyrir að hafa ekki
rætt faggreinina í sögulegu, félagslegu og hag-
rænu samhengi, kenna ætti á breiðari gmnni
með tilliti til annarra greina hug- og raun-
vísinda. Eftir aldarfjórðung hættu kandídatar
að gefa ráð, háskólinn var orðinn svo lélegur
að umbætur voru vonlausar.
Þessi skemmtilega könnun sýnir einfald-
lega hvernig þarfir manna breytast er þeir
þokast upp á við á starfs- og framaferlinum.
Ný verkefni krefjast nýrrar þekkingar og fæmi
sem afla verður eftir þörfum, síbreytileg við-
fangsefni krefjast símenntunar.
Kæri kandídat. I lífsins skóla munu störf þín
metin áfram. námið verður með öðru sniði og
einkunnir þínar koma í öðru formi, frá sam-
starfsmönnum og vinnuveitendum. Nú verður
ekki einungis krafist þekkingar og hæfni til að