Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1991, Blaðsíða 28
26
Árbók Háskóla íslands
þeir gömlu trúi öllu. Þessu mætti jafnvel snúa
við því að oft virðast þeir ungu trúa öllu. Hér á
árum áður, þegar ég var ungur, trúði ég því að
það sem ég lærði væri sannleikurinn, væri
veruleiki sem stæði á traustum grunni. En
þessi veruleiki tók stöðugum breytingum og
sannleikurinn reyndist oft hugmyndir einar,
tilgátur og kennisetningar. Nú er ég efagjarn-
ari, trúi síður á fullyrðingar og kenningar og
enn síður á slagorð hinna ýmsu erindreka
innlendra eða erlendra aðila.
Það eru ekki aðeins hinar ytri aðstæður sem
breytast í lífinu. Hver einstaklingur er í stöð-
ugri mótun á lífs- og þroskaferli sínum. Þessi
mótun mannsins er að hluta í eigin hendi, er á
vissan hátt sjálfsköpun, þar sem þú skalt leitast
við að vera það sem þú vilt verða. Ég vil með
þessu benda þér á að þú ræður miklu um eigin
hamingju og hugarró. Lífsgæði eru afstætt
hugtak og það besta í heimi hér verður aldrei
mælt með neinni mælistiku, en það er ást og
hamingja.
Senn er komið að kveðjustund. Við þökkum
ykkur samstarfið á liðnum árum. Þið hafið
fengið gott veganesti út í lífið og ykkur mun
farnast vel ef þið gætið hófsemi og sýnið
drengskap í öllum viðskiptum. Við erum stolt
af ykkur, bæði fjölskyldur ykkar og Háskól-
inn, og við væntum mikils af ykkur. Við vænt-
um þess að þið verðið sómakærir og liðtækir
þátttakendur í lífsbaráttu þessarar þjóðar sem
hefur ykkur alið og vel að ykkur hlúð. Þið
hafið þegið góða menntun sem opnar dyr
tækifæra víða um heim. Menntun er máttur
sem auðveldar þér, kæri kandídat, að vinna
sjálfstætt, auðveldar þér að fóta þig í flóknu,
tæknivæddu þjóðfélagi. Menntun þín á að gera
þig sjálfstæðan í hugsun og gagnrýninn, kenna
þér að vega og meta upplýsingar og frétta-
flutning og annað það sem mótar gjarnan
afstöðu þína í þjóðmálum sem öðrum málum.
Menntun þín örvar þig vonandi til þátttöku í
stjórnmálum og öðrum þeim málum sern móta
lífsskilyrði þín og framtíð alla. Menntun þín á
að hjálpa þér til að skilja sjálfan þig og þjóð
þína, að skilja og meta íslenska þjóðmenningu
og stöðu hennar nú og í náinni framtíð.
Menntun og hæfni þarf að halda við ekki síður
en öðrum verðmætum, og verið minnug þess
að menntun er ævilangur ferill. Við óskum
ykkur og fjölskyldum ykkar heilla og far-
sældar í framtíðinni.
Guð veri með ykkur.
Nihil sine labore
Brautskráning kandídata 27. október 1990
Kœru kandídatar og góðir gestir, ágœtu sam-
starfsmenn.
Ég býð ykkur hjartanlega velkomin til þess-
arar hátíðar og gleðistundar þegar kandídatar
taka við prófskírteinum úr hendi deildar-
forseta. Háskólaprófið er ekki markmið heldur
áfangi að markmiði, mjög mikilvægur áfangi
sem skapar fjölda tækifæra til að glíma við
áhugaverð viðfangsefni og skapandi störf. Lát-
um ekki sannast þær fullyrðingar að lang-
skólaganga dragi úr dirfsku og frumkvæði,
framtaksemi og sköpunargleði einstaklingsins.
Kæru kandídatar. I háskólanáminu hafið þið
sjálf orðið að afla ykkur þekkingar og þjálfun-
ar og þið hafið einnig lært að árangur er eng-
inn án vinnu. I lífi ykkar og störfum í framtíð-
inni verður veruleikinn hinn sami - nihil sine
labore - ekkert án vinnu.
Er þið nú kveðjið Háskóla íslands og haldið
til frekara náms eða starfa þá vil ég ræða við
ykkur um atvinnumál og atvinnuhorfur.
Atvinnumálaumræðan nú um stundir einkenn-
ist af kveinstöfum og úrtölum, og af ástæðu-
lausu vonleysi sem dregur kjark og þrek eink-