Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1991, Blaðsíða 44
42
Árbók Háskóla íslands
virkja vísindin enn frekar til styrktar atvinnu-
lífi landsmanna sem er of einhæft og við-
kvæmt.
Háskóli Islands gegnir einnig forystuhlut-
verki á sviði mennta. Með auknum áherslum á
gæði kennslu og þjónustu við nemendur, með
nýmælum og umbótum í kennsluháttum og
með því að efla metnað kennara og samvinnu
veitir Háskólinn þá forystu og verður sú fyrir-
mynd sem aðrir skólar geta dregið lærdóm af.
Forystan í Háskólanum er ekki aðeins í
höndum rektors og háskólaráðs, hún er einnig
í höndum deildarforseta og forstöðumanna
námsbrauta og skora, en mikilvægast er þó
forystuhlutverk háskólakennara og sérfræð-
inga sjálfra, því að þeir eru í forystu hver á
sínu fræðasviði. Ágæti háskóla ákvarðast af
gæðum þeirra rannsóknastarfa sem þar eru
unnin og þekkingu þeirra kandídata sem þaðan
eru brautskráðir. Það eru einstaklingarnir,
frumkvæði þeirra og framtak, áhugi og atorku-
semi, sem eru lykillinn að ágæti háskóla. Hlut-
verk stjómsýslunnar er að styðja þessa starf-
semi þeirra og skapa þeim góða aðstöðu og
frjótt umhverfi.
Forysta rektors og frumkvæði er mikilvægt
því að honum er ætlað að efla starfið í heild og
aðstöðu til starfa. Hlutverk rektors er bæði að
styrkja innviðina, samstöðu, metnað og sjálf-
straust starfsmanna og jafnframt að auka
kynningu og skilning almennings á háskóla-
starfseminni og afla þannig stuðnings við
Háskólann. Með þeim hætti öðlast einnig
stjómvöld frekari skilning á starfsemi Háskól-
ans og þeirri þekkingu og þeim styrk sem
stjómvöld geta sótt í stofnanir hans.
Margir starfsmenn og stúdentar, jafnvel ein-
staklingar utan Háskólans, leita til rektors með
vandkvæði sín. Þeir leita ekki eftir samúð
heldur miklu frekar eftir uppörvun og hvatn-
ingu, eftir styrk og stuðningi í efa eða erfið-
leikum.
Þegar hæverskan hættir að vera dyggð
Metnaður okkar fyrir Háskólans hönd er og
á að vera mikill. Við viljum meiri og betri
rannsóknastarfsemi og aðstöðu, fé og mann-
afla sem til þarf. Við viljum betri kennslu og
þjónustu við nemendur okkar, bæði yngri og
eldri, hvort heldur í gmnnnámi eða framhalds-
námi. Hlutverk okkar er að efla starfsemi
Háskólans á alla lund svo að hann verði sem
best í stakk búinn til að mæta þeim sívaxandi
kröfum sem til hans em og verða gerðar. Öll
uppbygging nýrrar starfsemi tekur tíma, því að
hún krefst aðstöðu, mannafla og þekkingar
sem fæst ekki með skjótum hætti. Mikilvægt
er að halda því á lofti sem áunnist hefur og vel
hefur tekist, það styrkir tiltrú og sjálfstraust,
ekki aðeins þeirra sem að því vinna heldur
einnig annarra í samfélaginu.
í uppeldi okkar og skólagöngu er hæversk-
an höfuðdyggð, að miklast ekki af eigin verk-
um heldur láta lítið yfir sér. Þessi hæverska er
einmitt mjög rík meðal margra háskólakennara
enda forðast þeir gjaman sviðsljósið. Þegar
lítillætið og hæverskan er komin á það stig að
menn gera of lítið úr eigin verkum og ágæti
eigin stofnunar en ástæða er til, þá hættir
hæverskan að vera dyggð. Við verðum að líta
af raunsæi og sanngimi á okkar eigin háskóla
og bera hann saman við sambærilega háskóla
að stærð og aðstöðu. Ef við aðeins lítum á þá
ríkustu og best búnu þá er skammt í barlóm og
úrtölur sem draga kjark og kraft úr mönnum.
Slfkar úrtölur eiga ekki erindi til okkar.
Háskólasamfélagið stendur á traustum gmnni.
Sjálfstraust manna hefur styrkst því að við
höfum með samhug og samvinnu aukið gæði
kennslu, rannsókna og þjónustu Háskóla
íslands. Vissulega þurfum við að gera betur og
okkur mun vanta þetta og hitt og svo mun ætíð
vera, en við höfum öðlast tiltrú og traust
íslensku þjóðarinnar sem við eigum að þjóna
og því trausti megum við ekki bregðast.
Háskóli Islands og fullveldi þjóðarinnar
Við lifum á örlagatímum þegar þjóðin er
uggandi um framtíðina, um stjórnmálalegt,
efnahagslegt og menningarlegt sjálfstæði sitt
og um innri gerð þjóðfélagsins. Við upplifum
örar breytingar í íslensku samfélagi, vaxandi
misskiptingu þjóðartekna, og þar við bætist
ótti við þverrandi þjónustu velferðarkerfisins