Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1991, Síða 163
161
Kaflar úr gerðabókum háskólaráðs
því að færa sem mest af ráðningum frá Mennta-
málaráðuneytinu til Háskólans. Hugmyndir
þessar em fram settar að tilstuðlan fjármálaráðu-
neytisins. Eftir skammar umræður var afgreiðslu
frestað til næsta fundar. (25.01.90)
Fram vom lögð endurskoðuð drög að tillögum
háskólans til Menntamálaráðuneytisins um tilhögun
mannaráðninga við Háskóla íslands. Rektor og
forseti lagadeildar gerðu grein fyrir tillögunum og
komu engar athugasemdir fram. (08.02.90)
Stjórnunarstörf metin
Rektor lagði fram til kynningar gögn, er varða
launaflokkahækkun prófessora vegna framúr-
skarandi kennslu- eða stjómunarstarfa. Umræðu
varfrestað. (08.02.90)
Fram var lögð svofelld tillaga:
»Háskólaráð beinir þeim tilmælum til Félags
háskólakennara og Samninganefndar ríkisins að í
kjarasamning háskólakennara verði bætt eftirfar-
andi ákvæði:
»Hafi prófessor sýnt ífamúrskarandi dugnað og
árangur við kennslu- eða stjómunarstörf, gemr
háskólaráð að undangengnu sérstöku mati dóm-
nefndar ákveðið honum tveggja launaflokka
hækkun. Ef slíkt ákvæði er í kjarasamningi mun
háskólaráð setja sér ákveðnar vinnureglur um
framkvæmd“. Rektor mælti fyrir tillögunni.
Ymsir tóku til máls og vom skoðanir skiptar.
Við skriflega atkvæðagreiðslu vom 10 atkvæði
greidd tillögunni, 3 atkvæði vom á móti og einn
atkvæðaseðill var auður. (22.02.90)
Kennsla í heimilislækningum
Forseti læknadeildar gerði grein fyrir tilboði
Félags íslenskra heimilislækna um að kosta stöðu
Prófessors í heimilislækningum í tvö ár. Svofelld
tihaga var lögð fram: „Háskólaráð samþykkir að
taka tilboði Félags íslenskra heimilislækna um að
kosta stöðu prófessors í heimilislækningum við
læknadeild Háskóla íslands í tvö ár svo fremi að
stJómvöld/Menntamálaráðuneytið tryggi fjárveit-
'ngu fyrir prófessorsstöðu þessa að þeim tíma
'iðnum. Tillagan var samþykkt samhljóða.
(22.02.90)
Vinnuskylda kennara
Með vísun til bréfa rektors, dags. 2. og 21. f.m. er
sent ljósrit af bréfí launaskrifstofu ríkisins, dags.
27. f.m., þar sem tilkynnt er, að skrifstofan sjái
ekki ástæðu til að breyta þeim ákvæðum sem sett
vom um skiptingu vinnuskyldu kennara milli
KHÍ og H.í. þegar þeir sinna vinnuskyldu sinni
með kennslu í báðum skólunum. Lagt fram bréf
mm, dags. 5. mars sl. (15.03.90)
Vinnumatsreglur og vinnumatsnefnd
Á fundinn kom Logi Jónsson, dósent, fulltrúi
Félags háskólakennara. í tengslum við umræður
um endurskoðun á reglum um vinnumat vegna
rannsókna, kennslu og stjómunar árið 1990.
Lagði Logi fram tillögu að reglum um vinnumat
Félags háskólakennara ásamt greinargerð og fleiri
fylgiskjölum. Gerði hann grein fyrir hinu fram
lagða. Allmiklar umræður spunnust um þennan
dagskrárlið og voru menn mishrifnir af því kerfi,
sem hér er fjallað um. Fram komu ýmsar ábend-
ingar og athugasemdir, sem Logi Jónsson svaraði
í lok umræðu. í nefnd til að skoða mál þetta til
næsta háskólaráðsfundar voru tilnefndir Páll
Einarsson, Svanur Kristjánsson og Unnsteinn
Stefánsson. (31.05.90)
Að nýju var tekin fyrir endurskoðun á reglum um
vinnumat vegna rannsókna, kennslu og stjóm-
unar, sbr. 13. lið síðustu fundargerðar. Fram var
lögð álitsgerð millifundaneíridar, sem falið var að
fara yfir tillögur Félags háskólakennara að reglum
um vinnumat. Páll Einarsson gerði grein fyrir
niðurstöðum millifundaneíhdar og tillögum hennar
til breytinga á tillögum Félags háskólakennara.
Allmiklar umræður urðu um þetta mál og ýmsum
vanköntum lýst. Breytingartillaga Svans Kristjáns-
sonar við 5. gr. var felld með 7 atkvæðum gegn 3.
Breytingartillaga millifundanefndar við 5. gr. var
samþykkt með 9 samhljóða atkvæðum.
Fram kom frá Sigurði Líndal breytíngartillaga, sem
hljóðaði svo: 2. mgr. 10. gr„ fyrsti málsliður orðist
svo: „Þýðing er metin sem 20-50% af vinnu við
hliðstætt frumverk".
Breytingartillagan var samþykkt með 8 samhljóða
atkvæðum. Þá var samþykkt breytingartillaga
millifundanefndar, svohljóðandi: „Kennslumála-
nefnd verði falið að gera tillögur um vinnumat