Búnaðarrit - 01.01.1925, Síða 9
BÚNAÐARRIT
Jónas Eiríksson,
skólastjóri.
Jónaa var fæddur á Skriðuklaustri í Fljótsdal 17. júní
1851. Þar bjuggu þá foreldrar hans, Eiiíkur Arason og Þóra
Árnadóttir. — Faðir Ara, föður Eiríks, hjet Ari Þorleifsson,
en móðir Ara var Gróa Eiríksdóttir, prests á Kolíreyjustað,
Einarssonar. Var hún komin af Hákarla-Bjarna Marteins-
syni, auðugum höfðingja á Eiðum á 15. öld, og Ragn-
hildi konu hans Þorvarðsdóttur, Loftssonar hins ríka
Guttormssonar. — Þóra, móðir Jónasar, var dóttir Árna
Stefánssonar frá Litla-Sandfelli, Magnússonar í Skriðu í
Breiðdal, Ólafssonar í Skriðu, Eyjólfssonar. Frá Stefáni
var margmenn ætt, kölluð Sandfellsætt. Ein dóttir hans,
systir Árna, var Ragnhildur móðir sjera Bjarna á Stafa-
felli, föður dr. Jóns Bjarnasonar í Winnipeg. Móðir Þóru
og kona Árna var Hallgerður Grímsdóttir, Ormssonar
prests á Reyðarvatni. Grímur var bróðir Vigfúsar prests
Ormssonar á Valþjófsstað.
Ólst Jónas upp hjá foreldrum sínum, uns faðir hans
dó 10. okt. 1860, en síðan hjá móður sinni, er bjó eftir
mann sinn á Klaustri til 1867. Eftir það var hann í
vinnumensku til 1875. Foreldrar hans höfðu verið
fremur efnalítil, en áttu 14 börn. Urðu þó eigi nema
6 fullorðin.
Jónas var snemma námfús, en lítið var þá um skóla
á landinu, nema latínuskólann. Hann langaði að vísu
1