Búnaðarrit - 01.01.1925, Síða 33
BÚNAÐARRIT
25
1922. Unnu þá frá 15 til 30 menn í 7 mánuði, en um
haustiS eru þó eftir 600 m.3 Verkið er hafið aflur í
byrjun aprilmánaðar 1923, og lokið 28. maí sama ár.
Eftirfarandi tölur gefa yflrlit yflr hvað árlega var
unnið að greftri skurða, og hver lengd og rúmmál
graflnna aðfærslu-, áveitu- og þurkskurða er samtals:
Ár: Lengd skurða, m. Rúmmál skuröa, m.*
1917 25300 45479
1918 16999 26202
1919 5600 10223
1920 9662 39829
1921 7330 38600
1922 700 3600
1923 600
Samtals 65591 164533
Rúmmál graflnna skurða er 23823 m.8 meira en
áætlað var, því breytt var í nokkru frá upphafs-áætlun
með fyrirkomulag skurðanna.
Trjebrýr voru bygðar á nokkra skurðina 1918 og
aðrar næstu árin á eftir, samtals eru þær 30 að tölu.
Ráðgert er að steypa þær aftur, þá er þær eru svo úr
sjer gengnar, að eigi verða þær notaðar lengur; mun
hreppsíjelagið, en eigi áveitufjelagið sem slíkt, annast
það. Trjestífiur voru af fjelaginu settar í skuiðina, um
70 alls, og enn þá verður fleirum bætt við, jafnframt
Því sem þörfin krefur, er fióðgarðar hafa verið hlaðnir.
Sumarið 1921 var flóðhliðið við Þjórsá bygt. Er það
hr járnbentri steinsteypu og er jafnframt brú á aðal-
aðfærsluskurði áveitunnar. Vorið 1923 er lokið að fullu
framkvæmd þeirra mannvirkja, sem áveitufjelagjð Ijet
gera. En á þess kostnað eru eigi gerðir aðrir skurðir
nje garðar en nefndir eru í áætlun verkfræðings Jóns
H- ísleifssonar. Stíflu-umbúnaður og brýr á sýslu-