Búnaðarrit - 01.01.1925, Síða 45
BTJN AÐA.RRIT
37
jarðasjóður jarðeign eina: Ólafsvelli, ásamt 5 hjáleigum.
Reiknuð áveitusvæði á nefndri jarðeign eru 542 ha.,
og greiddi kiikjujarðasjóður allan þann kostnað, senr
árlega var reiknað að kæmi í þeirrar jarðeignar hlut.
Pá hefir verið greitt vegna tveggja jarða, Birnustaða og
Borgarkots, sem nemur upphafs-áætlun yfir kostnaðinn
við verkið, samkvæmt skrá, sem er dagsett 8. jan. 1917
og undirrituð af landsverkfræðingi.
Eftir framanskráðu látum vjer fylgja skrá yfir fje það,
sem hetír verið til umráða til framkvæmdar fyrirtækinu:
I. Lán:
1. Veðdeildarlán . . . Kr. 271000.00
2. Viðlagasjóðslán . . — 16000.00
3. Víxillán............ — 12000.00 K|. 299000.00
II. Ríkissjóðstillag......................— 100227.00
III. Greitt vegna Ólafsvalla (kirkjuj.sjóður) — 34851.00
— — Borgarkots.................— 168.00
— — Birnustaða.................— 640 00
Samtals Kr. 434886.00
Af þessari upphæð hafa verið greiddar til sandgræðsl-
unnar á Reykjum kr. 3540.00, og afborganir af lánum,
sem eru rúmlega kr. 7000.00 (sjá að framan). Þessar
upphæðir, ásamt sjóðs-eft'rstöðvum, nema samtals tæp-
lega kr. 12000.00.
Til fyrirtækisins sjáifs hafa því gengið af þessum kr.
435000 00, um 423 þúsund, eða nákvæmlega kr. 422845.00.
En sú fjárupphæð, sem fyrirtækið á að svara vöxtum
og afborgunum af er kr. 434886.00, ásamt þeirri fjár-
upphæð, sem lögð heflr verið, og kann að verða lögð í
framtíðínni í byggingu flóðgarða, á svæðum þeim, sem
áveitunni tilheyra.
Ef vjer gerum ráð fyrir, að sú fjárupphæð, sem nú
Þegar hefir verið í þá lögð, sje kr. 23000.00, verður