Búnaðarrit - 01.01.1925, Page 144
186
BÚNAÐARRIT
vörðurinn geti haft þar búsetu, og að þar verði gerðar
tilraunir með sandgræðsluna.
Þessi staður er einkar vel fallinn til slíkra tilrauna.
Þar er hægt að stunda alt, sem að sandgræðslu lýtur,
og komið getur fyrir hjer á landi. Þar eru sljettir rok-
sandar, áveðra sandöldur og hólar, og blásin börð, sem
sifelt fýkur úr. Þar er hægt að ná í vatn, til áveitu á
viss svæði, og fleiri kostir, sem að sandgræðslu lúta.
Ef sandgræðslustöð kæmist upp á Stóruvöllum, þarf
verkefni hennar að vera:
1. Að græða hinar stóru sandauðnir í landi Stóruvalla
og á Klofaflötum.
2. Að gera tilraunir með hverjar aðferðir sjeu hentug-
astar við sandgræðslu. Þar kemur til greina notkun
garða til að stöðva sandfok, sáning í sandana,
áveitur o. fl.
3. í stöðinni ætti að safna melfræi í stórum stíl, til
ræktunar þar og annarsstaðar.
4. Til greina gæti komið, að á þessari stöb væri hægt
að safna grasfræi. Á því landi sem enn er grasi
gróið, vaxa hinar helstu tegundir af fóðurjurtum
vorum. í hinum sendna jarðvegi bera þær fræ flest
ár. Hjer er því tiltölulega auðvelt að safna grasfræi.
Af framangreindum ástæðum leggjum vjer eindregið
tll: Að hið háa stjórnarráð taki upp á áætlun fjárlag-
anna fyrir 1926 áætlun þá, sem hjer með fylgir.
Vjer sjáum eigi ástæðu til að orðlengja þetta frekar,
en vonumst eftir að hið háa stjórnarráð taki málið til
ítarlegrar yfirvegunar.
Virðingarfylit,
S. Sigurðsson.