Dvöl - 01.11.1937, Síða 26

Dvöl - 01.11.1937, Síða 26
352 Ð V ö L legt — þrengdu sér upp( í básinii til hennar og hvert upp að öðru. Þarna sátu þau svo og sungu jóla- sálma. Pau sungu líka aðra sálma — alla þá sálma, sem þau kunnu. Að lokum sungu þau þjóðkvæði og barnaþulur — hvíldu hjörtun í treganum og styrk þolinmæð- innar. — Kýrin lá ugglaus og jórtraði, lagði granirnar í keltu Guðnýjar og sníkti eftir blíðuhót- um. Og þau hlutu að hafa gleymt að loka dyrunum um kvöldið, þegar þau gáfu fénu, því að allt í einu fylltist fjóskytran af jarmandi lömbum. I fyrstu voru þau hrædd, þyrptust saman og vöfðust hvert um annað í hornunum, en síðan urðu þau svo gæf, að þau gáðu í jötuna hjá kúnni og þefuðu af höndum Guðnýjar og barnanna eftir brauði eða öðru ætilegu^ Þegar ekki var annað fyrir, unnu þau Guðný og Árni að göngunum upp að yfirborði snæv- arins — þrepstígnum til lífsins. Hvert lméhátt þrep tróðu þau nið- ur og gerðu það hart o'g fast. Síð- an mjökuðu þau sér áfram upp á við. Þau voru komin tíu þrep upp og höfðu náð góðan spöl upp fyrir bæjarþökin, en aldrei grillti í nokkra skínni gegnum snjóinn. Ekkert, sem boðaði dag. Guðnýju flaug í hug, að heimurinn hefði líklega farizt — að öll byggð, allt land, væri grafið undir fjallháum jökuldyngjum! Þau gætu mokað og mokað meðan kraftarnir ent- ust — en ef þau einhvern tíma næðu upp gegnum snjóbreiðuna, yrði það ef til vill aðeins til að horfa yfir auða og útdauða jörð, þar sem ekkert líf þrifist framar. Henni grömdust þessar hugsan- ir og hún bægði þeim frá sér. Hún og Árni héldu áfram vinnu sinni með rekunni, aðgættu reglu- lega svignandi þökin, endurbættu styrktarstoðirnar þar sem þær virtust ætla að láta undan — unnu þess á milli að snjóþrepunum, kæfðu óhugnaðinn með sjálfum sér, aðeins grófu og grófu. Vatnið í læknum fór smám saman að minnka. Áður en varði rann ekki meira en svo, að þau gátu hæglega náð öllu, sem til féll. Þau höfðu stöðugt bala eða fötu standandi undir bununni, sem aðeins rann út í dropatali. Ekkert mátti fara til ónýtis. Það var langt orðið síðan að kindurnar höfðu fengið vatn að drekka. Þær urðu áð láta sér nægja að éta snjó. Guðný reyndi jafnvel að koma kúnni til að éta snjó við þorstanum. En það kom niður á mjólkinni. Hún var nú ekki heldur jafn ríkuleg og áður. Lindirnar voru að því komnar að' þorna — einnig lindir hugrekkis- ins. Dag einn stakk Árni upp á því, hvort þau ættn nú ekki að reyna að finna móhlaðann. En hvort áttu þau að leita til hægri eða vinstri frá þeim gangi, sem þau höfðu grafið til einskis, það vissu þau ekkj.

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.