Dvöl - 01.07.1939, Síða 14
172
D VÖL
hann bjóst við, að skipstjórinn
kæmi. Hann leit á klukkuna. Hana
vantaði fimm mínútur 1 átta, og
ennþá var skipstjórinn ekki kom-
inn. Járnbrautarpallurinn fylltist
af fólki og stöðvarþjónninn hringdi
bjöllunni í ákafa. Einmitt þegar
hann hafði gefið upp alla von, kom
skipstjórinn i ljós. Hann þreytti
æðisgengið kapphlaup við lestina.
„Hann hefir það aldrei!" stundi
flugmaðurinn. Honum varð litið
lengra upp eftir götunni, og brá þá
heldur í brún, því að þrjú eða fjög-
ur hundruð metrum á eftir skip-
stjóranum kom frú Pepper hlaup-
andi.
Lestin rann inn á stöðina; far-
þegar stigu út og inn; hurðum var
skellt og lestarstjórinn var að bera
flautuna upp að munninum, þegar
Crippen kom reikandi með lafandi
tungu og korrandi andardrátt upp
á brautarpallinn og var hrundið inn
í þriðja flokks vagn.
„Litlu munaði,“ sagði stöðvar-
stjórinn um leið og hann lokaði
hurðinni.
Skipstjórinn hneig niður í sætið
með andköfum og leit um leið sigri
hrósandi upp eftir veginum.
„Verið rólegir," sagði stöðvar-
stjórinn vingjarniega um leið og
hann fylgdi augnatilliti skipstjór-
ans og kom auga á frú Pepper. „Við
skulum bíða eftir konunni yðar.“
Jackson Pepper kom fram undan
kolavagninum til að horfa á eftir
lestinni og gat ekki varizt að hugsa
um, hvað samræðuefni þeirra
mundi vera. Hann stóð þarna svo
lengi, að góðhjartaður brautar-
þjónn, sem heyrt hafði fréttirnar,
kom til hans og lagði hendina vin-
gjarnlega á öxl honum.
„Þér fáið aldrei að sjá hana
framar, herra Pepper,“ sagði hann
með hluttekningu.
Uppgjafaflugmaðurinn sneri sér
við og horfði hvasst á hann, og
síðasti vottur skapsmuna, sem
nokkurntíma sást bregða fyrir hjá
honum, svo að menn vissu, bloss-
aði upp þegar hann vatt sér að
brautarþjóninum og sagði:
„Þú ert grasasni!"
Gísli Ólafsson þýddi.
Nú er búið að finna upp nýja aðferð
til þess að rannsaka hvort gimsteinar
eru ekta, hve mikið jám er í jámsteini
o. s. frv. Með því að leysa upp Thallin-
salt í vatni, myndast vökvi, og er hœgt
að breyta eðllsþyngd hans eftlr vild.
Þegar t. d. er framleiddur vökvi, sem
hefir eðllsþyngdina 3,54, en það er eðlis-
þungi ekta gimsteina, og ef settur er gim-
steinn niður í hann, situr stelnninn kyrr
í miðjum vökvanum, en sé steinninn svik-
inn, sekkur hann til botns eða flýtur
ofan á. Á sama hátt er hœgt að prófa
kol, einnig gull og ýmsa aðra málma.
Ef lítið eitt af borðsalti er sett í stein-
oliuna á venjulegum oliulampa, verður
ljósið stórum bjartara.
----
Nýlega var 570000.00 kr. loðkápa til sýn-
is og sölu í verzlun elnni í New York. 1
kápunni voru 95 skinn aí svokölluðum
albino-mink, en hann er kominn út af
venjulegum mlnk i aðra œtt og herme-
lin í hina.