Dvöl - 01.07.1939, Blaðsíða 56

Dvöl - 01.07.1939, Blaðsíða 56
214 D VOL Norski einbúinn Martin Tranmæl Eftir Baldur Bjarnason stud. mag'. Grein sú, sem hér birtist, er eftir ungan Snæfelling, sem les sagnfræði við há- skólann í Osló. Eins og mönnum er kunn- ugt, stjórnar nú verkamannaflokkurinn Noregi með stuðningi bændaflokksins. — Pyrir nokkrum árum voru verkamenn í Noregi sundraðir í marga flokka. Tranmæl ritstjóra tókst, öllum öðrum fremur, að sameina þá og byggja upp stærsta og sterkasta flokk Noregs og er Tranmæl talinn ráða mestu í landinu á síðari árum. En hann kýs ekki að vera í háum virð- ingarstöðum. — Það er ekki ósennilegt, að íslenzkum lesendum þyki gaman að heyra um þennan mikla áhrifamann frænda vorra fyrir austan hafið, og flytur því Dvöl um hann grein hins unga menntamanns. En í næsta hefti er gert ráð fyrir að birtist grein um mesta ráðamanninn fyrir vestan Atlantshafið. Árið 1879 fæddist Olsen Tran- mæl, bónda í Þrándheimi, sonur, sem í skírninni hlaut nafnið Mar- tin. Tranmæl-ættin hafði hingað til verið algerlega óþekkt bænda- ætt. En sveinninn Martin átti eftir að gera garðinn frægan. Hann var yngstur margra systkina, og varð því, eins og oft ber við, fyrir yfir- gangi og ójöfnuði eldri bræðra heima fyrir. En hann varð snemma harðfengur og ódæll og, er hann stálpaðist, svo erfiður viðureignar að fáir þorðu að komast í kast við hann. Hann varð snemma erfiður foreldrum sínum, skeytti lítið um líkamlega vinnu, en gaf sig mjög að bókalestri. Hann var lítt sam- gróinn sveit sinni og ættfólki og fór ungur út í heim til að vinna fyrir sér. Hann gerðist iðnaðar- maður og lagði stund á húsa- og skiltamálningu. Hann varð brátt snjall iðnaðarmaður og tók sveins- próf kornungur. Hann stundaði líka nám í iðnskóla og gagnfræða- skóla og þótti góður námsmaður, en óeirinn og brellinn, þegar svo bar undir. Hann undi ekki í heima- landi sínu og fór ungur til Amer- íku. Þar vann hann fyrir sér sem málari og lagði jafnframt mikla alúð við að mennta sig og afla sér sem mestrarþekkingar.Hannkynnti sér skáldskap og stjórnmál, sögu og félagsfræði. Hann var líka ágæt- ur málamaður og lærði ensku, frönsku og þýzku eins vel og móð- urmál sitt. Tranmæl dvaldi mörg ár í Ameríku og dvölin þar hafði mýkjandi áhrif á hina hörðu skap- gerð hans og framkomu. Hann varð smátt og smátt ljúfur maður í um- gengni, viðmótsþýður og mann- blendinn. Hann var maður gædd-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.