Dvöl - 01.07.1939, Side 37

Dvöl - 01.07.1939, Side 37
D VÖL 195 Töfrabrauðið Eftir O’Henry Ungfrú Martha Meacham átti litla brauðsölubúð á götuhorni. Það var ein þessara brauðsölubúða, þar sem gengið er upp tvær tröppur, og þegar hurðin er opnuð, hringir bjalla. Ungfrú Martha var fertug að aldri, átti tvö þúsund dollara í bók og hafði tvær gervitennur og gott hjarta. Það hafa sannarlega margir gengið í hjónaband, sem siður höfðu ástæður til þess en ungfrú Martha. Nú var hún farin að gefa einum viðskiptavina sinna alveg sérstakan gaum. Hann kom tvisvar til þrisvar í viku, var miðaldra maður, með gleraugu og brúnleitt, vel hirt skegg. Hann talaði ensku með greinilega þýzkum framburði. Hann var í snjáðum, bættum fötum, sem auk þess voru þvæld og hólkvíð. En þrátt fyrir þetta var hann snotur útlits og sérlega kurteis. Þessi maður keypti æfinlega tvo hleifa af gömlu brauði. Nýr brauð- hleifur kostaði fimm shillinga, en gamall helmingi minna. En hann bað aldrei um annað en gömul brauð. Svo veitti Martha því eftirtekt, að hann hafði rauða og brúna bletti á fingrunum, og þá varð hún þess fullviss, að hann væri listmálari og mjög fátækur. Án efa bjó hann í þakherbergi, þar sem hann málaði myndir sínar, át skorpið brauð og hugsaði til hins lostæta góðgætis í brauðabúðinni hennar. Þegar ungfrú Martha settist nið- ur til þess að borða rifjasteikina sína, ásamt hveitibrauði, ávaxta- mauki og tei, þá andvarpaði hún stundum og óskaði þess af heilum hug, að þessi kurteisi listamaður væri orðinn þátttakandi í hinni ljúffengu máltíð sinni, í stað þess að bryðja þurrar brauðskorpur í drepköldu þakherbergi. Ungfrú Martha var einstaklega góðhjörtuð, eins og þegar hefir verið tekið fram. Til þess að ganga úr skugga um, hvort tilgáta sín um stöðu manns- ins væri rétt, tók ungfrú Martha málverk, sem hún hafði eitt sinn keypt á uppboði, og lét það á hillu fyrir ofan búðarborðið. Það var frá Veneziu, af glæsilegri marmara- höll og í baksýn sáust „gondólar" á siglingu og í þeim voru konur, er létu hendurnar strjúkast eftir yfir- borði vatnsins; auk þess ský, him- inn og allskonar litskrúð. Hver einasti listamaður hlaut að veita því athygli. Tveim dögum síðar kom maður- inn.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.