Dvöl - 01.07.1939, Page 28

Dvöl - 01.07.1939, Page 28
186 DVÖL istinni og þeir fyrri. Það var komið undir kvöld, þegar ég sendi eftir veitingamanninum. Ég gat þess, með mikilli varfærni, til þess að koma í veg fyrir allan grun, að ég kenndi mjög í brjósti um þennan vesalings mann, svo vina- og vandalausan, svo einmana og yfir- gefinn og allslausan, og að mig langaði til að gera eitthvað fyrir hann. Hann svaraði: „Þér skuluð ekki vera með áhyggjur hans vegna, það er aðeins til að skapa yður árang- urslausa fyrirhöfn og armæðu. Hann vantar ekkert. Ég læt hann vinna við að hreinsa gripahúsin og það er allt og sumt, sem hann er fær um að vinna. Fyrir það læt ég hann fá fæði. Hann sefur svo hjá hestunum. Meira þarfnast hann ekki. Ef þér eigið gamlar buxur að gefa honum, þá gerið það, en ég segi yður fyrir- fram, að eftir viku verða þær komnar í tætlur". Ég afréð ekkert, en ákvað að bíða. Um kvöldið kom náunginn heim blindfullur og hafði næstum kveikt í húsinu og barið hestana til óbóta. Loks sofnaði hann úti í rigningunni liggjandi í mykjuhaugnum. Þetta var árangurinn af örlæti mínu. Næsta dag báðu þau mig að gefa honum ekki meiri peninga, því að hann væri beinlínis hættulegur undir áhrifum víns og í hvert skipti, sem hann ætti tvo sous í vasanum, færi hann og keypti brennivín fyrir þá. Og veitingamaðurlnn sagði: „Að gefa honum peninga, er sama og að myrða hann“. J Það var sjáanlegt, að þessi vesa- lingur hafði aldrei haft peninga undir höndum, í hæsta lagi nokkra centimes, sem ferðamenn höfðu kastað til hans, og þekkti áreiðan- lega ekki betri stað fyrir þá en öl- stofuna. Því næst eyddi ég nokkrum klukkustundum í herbergi mínu. Sat með opna bók og lét sem ég læsi, en raunverulega gerði ég ekki annað en horfa út um gluggann á fábjánann í garðinum. Sonur minn! Sonur minn! Ég reyndi að sjá, hvort hann væri nokkuð líkur mér. Með nákvæmri eftirtekt fannst mér ég sjá drætti í kringum augu og nef, sem virtust bera svip af mér. Og ég var strax sannfærður um, að hann væri í mörgu líkur mér, en að það leyndi sér aðeins vegna óhreininda og tötralegs klæðnaðar. Ég gat ekki verið lengi á gisti- húsinu án þess að vekja grun. Ég lagði því af stað, hryggur og niður- brotinn, og skyldi eftir í höndum veitingamannsins nokkra fjárupp- hæð, sem ég ætlaði honum að verja á einhvern hátt til hjálpar þessum fáráðling. Síðan eru sex ár og þessar hugs- anir hafa alltaf fylgt mér, þessi hræðilega óvissa, þessi andstyggi- legi vafi, sem á hverju ári dregur mig til Pont Labbé með ómótstæði- legu afli. Hvert ár dæmi ég sjálfan mig til þeirra hræðilegu sálarkvala

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.