Dvöl - 01.07.1939, Page 39

Dvöl - 01.07.1939, Page 39
D VÖL urinn sneri sér við, var hún búin að vefja utan um þá. Er hann var farinn, að afstöðnu óvenjulega skemmtilegu samtali, brosti Martha með sjálfri sér, en hún kenndi þó nokkurs kvíða. Hafði hún verið of djörf? Mundi hann móðgast? Gat smjörið verið nokkurt tákn ókvenlegrar ást- leitni? Mestan hluta dagsins dvaldi hugsun hennar við þetta atriði. Hún skóp í huga sér mynd þess, er hann uppgötvaði þennan litla grikk hennar. Hún sá hann í anda leggja frá sér penslana og lita- spjaldið. Og þarna stóð málverka- grindin hans með mynd, sem hann vann að, og þar voru fjarvídd- irnar hafnar yfir alla gagnrýni. Svo bjóst hann til þess að borða morgunverðinn, vatn og þurrt brauð. Nú skar hann á brauðinu ..... ó! Martha roðnaði. Skyldi hann hugsa til þess, sem lét smjörið þar? Skyldi hann gera það? Dyrabjöllunni var hringt harka- lega. Einhver kom inn með miklu fasi. Ungfrú Martha hraðaði sér fram. Þar stóðu tveir menn. Ann- ar þeirra var ungur maður, reykj- andi pípu, maður, sem hún hafði aldrei séð. Hitt var listamaðurinn hennar. Hann var dökkrauður í andliti, hatturinn hékk aftur á hnakka. Hann kreppti hnefana og steytti þá ógnandi framan í Mörthu, framan í ungfrú Mörthu! 197 „Dummkopf!“ öskraði hann. „Tausendonfer!" hélt hann á- fram og svo sagði hann eitthvað fleira á þýzku. Ungi maðurinn reyndi að toga hann í burtu. „Ég fer ekki fyr en ég hefi sagt henni það,“ hrópaði hinn reiði- lega. Og hann sló búðarborðið eins og bumbu. „Þér hafið eyðilagt mig“, hvæsti hann, og bláu augun hans skutu gneistum á bak við gleraugun. Ungfrú Martha hallaðist upp að búðarhillunum og fitlaði með ann- arri hendi við bládröfnótta silki- kjólinn sinn. Ungi maðurinn tók í jakka- kraga félaga síns. „Komdu“, sagði hann, „þú hef- ir sagt nóg.“ Svo togaði hann hinn reiða mann út að dyrunum og inn í hliðarganginn, því næst kom hann aftur. „Það er víst bezt að segja yður hverju þessi gauragangur sætir,“ sagði hann. „Þessi maður heitir Blumburger og er húsameistari, ég vinn á sömu skrifstofu og hann. í þrjá mánuði hefir hann verið önnum kafinn við að vinna að teikningu stórbyggingar, — það var verðlaunakeppni. — Hann lauk blekteikningunni í gær. Eins og þér ef til vill vitið, eru frum- drættirnir ávallt gerðir með blý- anti, síðan eru þeir þurrkaðir út með mola af þornuðu brauði, það er miklu betra en strokleður. — Blumburger hefir keypt brauðið

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.