Dvöl - 01.07.1939, Qupperneq 62

Dvöl - 01.07.1939, Qupperneq 62
svaraði Filomena stillilega, „en ég held að ég hafi kysst hann á munn- inn.“ „Óhyggilegt, óhyggilegt, að gera þetta síðasta. Ég skil, að það var gert í góðum tilgangi, dóttir mín. Þú varst gripin guðræknislegri við- kvæmni — fögur hugsun — en hættuleg. Það hefði verið betra að hafa það augun í stað munnsins, og það hefði verið nægilegt til þess að bjarga sál hans. En þú kysstir karlmann, sem var að deyja.“ „Það var líka það, sem ég sagði, faðir.“ „Og nú, þegar hann er dáinn og grafinn — friður sé yfir burtför hans — muntu þá aldrei framar hugsa um hann?“ „En faðir! Hann er ekki dáinn. Hann lifir!“ „Lifir ?! “ „Já, hann var milli heims og helju fram til dagmála. En með fyrsta sólargreislanum kom batinn. Læknirinn, sem var í vitjun í stof- unni, gat ekki leynt undrun sinni yfir breytingunni á veika mann- inum, sem leit brosandi á hann. Hann rannsakaði hann gaumgæfi- lega, gaf honum deyfandi sprautu og sagði: „Þetta er óvenjulegt, mjög óvenjulegt. Ef til vill getum við gert yður jafn góðan aftur.“ „En þetta er ógæfan!“ hrópaði skriftafaðirinn upp í skelfingu. „Hvað segirðu, faðir?“ „Þetta er hræðilegt, dóttir mín. Þú hefir kysst mann á munninn og maðurinn lifir. Ég veit ekki hvað gera skal. Hefði dauðinn komið, var öðru máli að gegna. Þá hefði allt jafnazt fyrir augliti guðs. En ef hann lifir, er hans heilagleika stór- kostlega misboðið. Við skulum tala í einlægni. Við verðum að bjarga þessu við!“ Eftir dálitla umhugsun hélt hann áfram að spyrja. „Segðu mér, dóttir, hvernig mað- ur er þessi læknir?“ „Ó, ágætis maður!“ „Og hvernig læknir er hann?“ „Hann er einn þeirra beztu.“ „Og hvernig líður veika mannin- um?“ „Hann er betri.“ „Þú ert glötuð!“ „Ó, guð minn góður!“ „Þú vogar þér enn að ákalla nafn hans!“ „Ég er ístöðulaus, faðir!“ „Þú ert óverðug þess að bera þennan búning.“ Systir Filomena brast i ákafan grát, og skriftafaðirinn talaði held- ur blíðlegar þegar hann hélt áfram: „Ég skil þetta ekki vel ennþá. Þú sagðir mér áðan, að þegar samvizka þín segði þér að þú hefðir ekki syndgað, þá þjáðist þú meira held- ur en þegar hún segði þér hið gagn- stæða. Hvernig getur þetta staðizt? Hvernig á ég að skilja þetta?“ „Ég veit það ekki, faðir. En ég finn þetta svona og ég hefi sagt þér það eins og það er.“ „Og nú iðrastu þess, sem þú hefir gert?“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Dvöl

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.