Valsblaðið - 01.05.1999, Page 7
Kynning
Bjarki Sigurðsson leikmaður meistaraflokks í handbolta
Fæðingardagur og ár:
26.09. 1980
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár:
Eg sé okkur Valsmenn taka allar dollur
sem í boði eru í karla- og kvennaflokki.
Einnig bind ég miklar vonir við ungu
strákana í fótboltanum, þeir eiga að geta
rifið fótboltann upp.
Fyrsta augnablikiö sem þú manst eftir:
Eg man ekki einu sinni hvað gerðist í
gær... en það er eins og ég muni eftir
þegar ég var borða úr sandkassa í leik-
skóla.... þetta er allt afar óljóst.
Hver er uppáhaldsbróðir þinn:
Láttu ekki svona, hvernig á ég að geta
gert upp á milli þessara manna ... hvílík-
ir listamenn.
Andlegur og líkamlegur
munur á Degi og Lalla:
Þeir fíflast báðir mjög mikið en einhvem
veginn finnst mér meiri læti í Lalla ...
Dagur reynir að halda meira „cool-inu“.
Líkamlega er Dagur náttúrlega höfðinu
hærri, báðir með ágætis kassa en Lalli
kannski með betri lappir heldur en Daddi
þó svo tæmar á Dadda séu langflottastar.
Er Lalli búinn að vera:
Lalli er rétt að byrja ..., ekki veit ég hvað
hann gerir í boltanum en hann er búinn
að vera frekar slappur í hnjánum. Hann
er búinn að koma sér vel fyrir hvað fjöl-
skylduna og vinnuna varðar og svo var
hann að útskrifast úr Háskóla Islands.
Lífið leikur við Lalla bróður.
Af hverju handbolti:
Einfaldlega skemmtilegasta íþróttin, ég
nennti ekki að fara í táfýlusportið, miklu
meiri aksjón í handbolta.
Eftirminnilegast úr boltanum:
Þegar við urðum Norðurlandameistarar
með U-18 ára landsliðinu núna í sumar.
Við vorum 5 úr Val; ég, Snorri Gaupa-
son, Markús „módel“ Michaels, Fannar
Tobbason og Stefán „Redskinn" Hannes-
son.
Skemmtilegustu mistök:
Eg er að vinna í Nanoq og það kom til
mín maður á mínum fyrsta degi og
spurði hvar Skátabúðin væri. Eg hugsaði
mig vandlega um og sagðist halda að
hún væri í „gömlu“ Kringlunni. Hann
þakkaði fyrir og fór að leita að henni. 20
mín. seinna kom hann aftur til mín þar
sem ég stóð við hliðina á yfirmanni mín-
um og sagði við mig: Heyrðu vinur...
ÞETTA ER SKÁTABÚÐIN.
Fyndnasta atvik:
Þegar Stebbi Redskinn festist í gluggan-
um l'yrir ofan þjálfaraherbergið, hann var
að stelast í boltana fyrir æfingu.
Stærsta stundin:
Mér fannst rosalega gaman að sjá Lalla
og Dadda gifta sig og síðan eignast börn,
ótrúlegt en satt þeir eru orðnir fullorðnir.
Hvað hlægir þig í sturtu:
Júlli Jónasar og Geiri Sveins., því þá sé
ég hvað ég á langt í land með „sixpakk-
inn“ á mér. Og auðvitað FannarTobba-
son, hann er með svo svakalega...
Kostir:
Skelfilega tapsár ... ég vill vinna allt!
Gallar:
Ég borða dálítið mikið nammi.
Athyglisverðastur í meistaraflokki:
Ingvar Sverrisson = „Egyptinn“... hrika-
lega skemmtilegur karakter og félagi,
tekur uppá ótrúlegustu hlutum sem og að
vera mjög góður homamaður með rosa-
legar gabbhreyfingar ... stelpur þetta er
klassa gaur!
Hver á Ijótasta bílinn:
Það er engin spurning að Hannes Jón
Jónsson á alveg hryllilega ljótan bíl,
Toyota DX 1980, rauður. Hann er að
reyna selj’ann, kannski gef’ann. Áhuga-
samir hringja í síma 698 6656.
Hvað lýsir þínum húmor best:
Hnitmiðaður, stríðinn og oft særandi...
en alveg skelfilega fyndinn.
Fleygustu orð:
Áttu eld, nei bara bursta.
Mottó:
Lifa lífinu lifandi.
Fyrirmynd í boltanum:
Dagur og Lárus. Ég er enn að reyna að
ná undirskotunum eins og Lalli tók þau.
Leyndasti draumur:
Að spila á gítar með Sálinni, Jagúar og
Oasis.
Erfiðasti andstæðingur:
Hinn ótrúlegi Gummi Hrafnkels. Hann .
getur varið allt.
Kærasta:
Berglind íris Hansdóttir.
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Undir sæng með kveikt á sjónvarpinu,
nammi, kók og kærustuna.
Eftirminnilegasta stefnumót:
Öll stefnumót með Beggu eru eftirminni-
leg. Þó verð ég að segja að ég var ansi
spenntur að fá Stebba Hilmars heim í
viðtal. Það var flott.
Hvaða setningu notarðu oftast:
Mamma, hvað er í matinn.
Við hvern hefur þér verið líkt:
Auðvitað langmest við Dadda og Lalla.
Eftir hverju sérðu mest:
Að hafa ekki látið afa Dag kenna mér á
píanó þegar ég var yngri.
Ef þú yrðir að vera einhver annar:
Ég er frekar sáttur við það sem ég er og
það sem ég hef, en ég væri til í að prófa
að vera Noel Gallagher í einn dag eða
svo.
Ef þú værir alvaldur í Val:
Ég mundi klára að byggja skrifstofumar
fyrir ofan litla salinn og byggja eitt
stykki stórt íþróttahús fyrir 4000 manns.
Valsblaöið 1999
7