Búnaðarrit - 01.01.1943, Page 27
BÚNAÐARRIT
25
11. Ni'jbýli í RangárvaUasýslu, bgggt 1936—1938.
íhúðarhús (i'ir steinsteypu) ......... kr. 6255.46
Búpeningshús (úr steinsteypu, timbri
og járni, fjós, heyhlaða, fjárhús og
áburðarhús) ........................ — 3362.87
Ræktun (2,4 ha) ....................... — 1100.00
Kr. 10718.33
12. Nýbýli i Árnessýslu, byggt 1936—1939.
íbúðarhús (úr steinsteypu) ........... kr. 5488.06
Búpeningshús (að mestu úr stein-
steypu, fjós, heyhlaða, fjárhús og
safnþró) '.......................... — 4019.10
Ræktun (2 lia) ........................ — 910.77
Kr. 10417.93
Eins og þessi dæmi sýna, þá hefur stofnkostnaður
þessara 12 nýbýla orðið ca. kr. 11500.00 að meðaltali,
þar með talin rælctun á ca. tveimur hekturum, sem
að vísu er aðeins byrjunarræktun. íbúðarhúsin eru
öll af minnstu gerð, sem byggð hafa verið undir eftir-
lili teiknistofunnar. Rúpeningshús eru á öllum þessum
hýlum fyrir smábú.
Byggingarkostnaður íbúðarhúsanna er að meðaltali
ca. 6600 kr. og meðaltals byggingarkostnaður búpen-
ingsliúsa á hverju býli er lullar 3500 kr. íbúðarhús
þessara nýbýla eru að meðaltali 225 m8 að stærð og
búpeningshúsin eru að meðaltali: fjós fyrir 5—6 gripi,
fjárhús fyrir 50—75 fjár og hlöðurúm fyrir 2—300
hesta af heyi.
Byggingarkostnaður býlanna er misjafnlega hár og
stafar það af ýmsum ástæðum. Flutningskostnaður á
erlendu og innlendu byggingarefni er mismunandi
eflir afstöðu nýbýlanna við verzlunarstaði o. s. frv.
Vinnan við byggingarnar er og stór liður og munar