Búnaðarrit - 01.01.1953, Page 8
6
BÚNAÐARRIT
jafnháa upphæð og þá, sem hann þarf að greiða fyr-
ir aðkeyptar vörur og aðra þjónustu. En bóndinn
skiptir við fleiri viðskiptavini en þá, sem hér um
ræðir, og undir þeim viðskiptum getur afkoma hans
engu síður verið komin.
Hann skiptir líka við móður jörð. Frá henni fær
hann heyið, og það gctur orðið honum ákaflega mis-
dýrt. Enn fremur skiptir hann við búféð, sem um-
setur hevið í seljanlegar afurðir. Hvernig honum
farast þau viðskipti, getur haft úrslitaáhrif á afkomu
lians.
1 þessari grein vildi ég reyna að benda á ýmis at-
riði, sem þýðingu hafa fyrir afkomu bóndans, og á
þá höfuð nauðsyn, að hann framleiði sem me.star og
beztar afurðir á sem hagkvæmastan hátt fgrir sjálf-
an sig og þjóðarheildina.
II.
Af framleiðsluvörum bænda eru það aðeins mjólk-
urafurðir og egg, sem falla lil daglega. Þar sem sam-
göngur eru komnar í sæmilegt horf og markaður er
fyrir liendi, eru jjessar tvær tegundir afurða seldar úr
búi og greiddar ýmist daglega, vikulega eða mánaðar-
lega. Bændur, sem búa við slíka aðslöðu, fá daglega
eða vikulega peninga milli handa og geta því greitt
þarfir sínar jafnóðum og þeir þarfnast þeirra. Þeir,
sem ekki hafa þessa aðstöðu, sníða fleslir stærð
kúabúanna við þörf heimila sinna. Það er því frek-
ar skortur á markaðs aðstöðu, sem takmarkar stærð
kúabúanna í hinum ýmsu héruðum, enn scm komið
er, en framleiðsluskilyrði jarðanna sjálfra.
Helztu framleiðsluvörur bænda, sláturafurðirnar,
falla allar til sölu á haustin, en ullin á vorin. Bónd-
inn fær andvirði þeirra áætlað við afhendingu, en
sjaldnast greiddar fyrr en þær seljast, og það getur
oft dregizt allt að því ár með sumar þeirra.